Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar

Stefna:

Stefnuskrá vinstri grænna
í sveitarstjórnarkosningum í Árborg 2010

Ábyrgð
Við viljum áframhaldandi varfærni og ábyrgð í rekstri bæjarsjóðs og teljum að gæta þurfi sparsemi og aðhalds næstu ár.

Samhjálp
Velferðarþjónustan er það mikilvægasta í rekstri bæjarins og það reynir verulega á hana nú þegar fjöldi heimila glímir við fjárhagserfiðleika og atvinnumissi.

Réttlæti
VG í Árborg leggur áherslu á réttlæti, heiðarleika og gegnsæi í öllum vinnubrögðum.

Lýðræði
Með undirskriftum 25-30% íbúa geti íbúar tekið mál úr hendi bæjarstjórnar í almenna atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla sem 60% íbúa tekur þátt í telst bindandi fyrir bæjarstjórn. Hverfaráð fái sess í stjórnsýslu bæjarins.

Umhverfismál
Árborg hefur verið í forystu landsbyggðarsveitarfélaga í umhverfismálum og brýnt að svo verði áfram.

Atvinnumál í öndvegi
Í atvinnumálum vill VG stuðla að kröftugri uppbyggingu og nýsköpun með stofnun nýsköpunarsjóðs sem sprotafyrirtæki geta sótt til. Sérstök áhersla verði lögð á að kynna sveitarfélagið og kosti þess fyrir ferðamenn og styðja þannig við atvinnugreinar í ferðaþjónustu og tengdri starfsemi. Traust fjármálastjórn sveitarfélagsins er mikilvæg til að stuðla að gróskumiklu atvinnulífi.

 

 

Skólamál
Við viljum efla skólastarf í Árborg, aðkomu foreldra og innri metnað. Við viljum standa vörð um að skólahald á Eyrarbakka en teljum ekki raunhæft að stefna að nýbyggingu skólahúss þar á komandi kjörtímabili.

Málefni fatlaðra
Stefnt er að tilflutningi málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Við teljum mikilvægt að við yfirtöku þessa viðkvæma málaflokks séu félagsleg sjónarmið ráðandi. Ríflegar fjárveitingar verða að fylgja málaflokknum.

Skipulagsmál
Setjum frágang í miðbæjum þéttbýlisstaðanna í Árborg í forgang.

Bæjarstjóri
VG í Árborg vill auglýsa stöðu bæjarstjóra.

Samstarf sveitarfélaga
VG í Árborg leggur áherslu á samstarf sveitarfélaga á öllu Suðurlandi og viljum efla það meðal annars með þeim málaflokkum sem sveitarfélögin eru nú að taka til sín. Við höfnum nauðungarsameiningu sveitarfélaga.

Seljum ekki eigur Árborgar
VG í Árborg hafnar því algerlega að fjármagna bæjarsjóð með sölu þeirra eigna sem nýtast til að veita lögbundna þjónustu. Þar með teljum við fráleitt farið verði í sölu félagslegra íbúða sveitarfélagsins enda brýnt að efla velferðarþjónustuna á þeim krepputímum sem nú eru.

 

Vinstri grænhreinar línur

 

Ábyrgð, samhjálp og réttlæti


Stefna VG í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningar 2010 byggir á þremur megin áherslu-málum sem taka mið af þeim óvanalegu og erfiðu aðstæðum sem nú eru í íslensku samfélagi.

Í fyrsta lagi ábyrgð og ráðdeild við rekstur sveitarfélagsins. Sveitarfélagið Árborg hefur ekki farið varhluta af kreppunni en mun ganga í gegnum hana styrkum fótum sé aðhalds og sparsemi gætt við rekstur næstu árin. VG í Árborg hafnar því að lausna á vanda sveitarfélaga sé að finna í aukinni einkavæðingu þjónustunnar eða sölu þeirra eigna sem nýta þarf við lögbundin verkefni.

Í öðru lagi leggjum við áherslu á samhjálp og velferð. Þrátt fyrir áframhaldandi aðhald og sparnað í rekstri er brýnt að verja velferðar­þjónustu sveitarfélagsins. Beina þarf kröftum samfélagsins að því verkefni að koma til móts við þarfir og vanda þeirra einstaklinga og þær fjölskyldna sem verst hafa orðið úti í efnahagshruninu. Samhjálp og velferðar-þjónusta er elsta og mikilvægasta hlutverk sveitarstjórna í landinu og þar teljum við mikilvægt að hafa að leiðarljósi félagshyggju og aðra það þá meginþætti sem einkennt hafa stefnu VG á landsvísu, jöfnuð, kvenfrelsi, umhverfi og lýðræði.

Í þriðja lagi teljum við mikilvægt að skapa á ný traust milli kjósenda og stjórnmálamanna. Það teljum við best gert með því að hafa réttlæti, heiðarleika og gagnsæi við stjórnun bæjarfélagsins. Þar viljum við leggja okkar lóð á vogarskálarnar. Við leggjum áherslu á að mikilvægum bæjarmálum megi vísa til kjósenda í atkvæðagreiðslu. Árborg er stórt sveitarfélag með marga byggðakjarna. VG í Árborg leggur áherslu á að á kjörtímabilinu verði kannaðir möguleikar á stofnun hverfisráða sem hafi formlega stöðu í stjórnkerfinu.
VG í Árborg telja mikilvægt að verja þann árangur sem náðst hefur í stjórn sveitar-félagsins undanfarin ár. Framboðið leggur áherslu á félagshyggju í stað frjálshyggju.

VG í Árborg gengur óbundin til kosninga til bæjarstjórnar Árborgar árið 2010 og telur heppilegt að á nýju kjörtímabili sé staða bæjarstjóra auglýst og ráðið til starfsins á faglegum grunni.

Hér á eftir koma stefnumið okkar í einstökum málaflokkum, fjármálum, skipulagsmálum, atvinnumálum, velferðarmálum, málefnum aldraðra, umhverfismálum og að síðustu mennta- og menningarmálum.


Vinstri grænhreinar línur


Fjármál Sveitarfélagsins Árborgar

Þrátt fyrir fjárhagserfiðleika undan­farinna ára hefur Sveitarfélaginu Árborg tekist að halda öllum meginstoðum í þjónustu gangandi og komið ýmsum nýjum félagslegum þáttum á laggirnar. Þar má nefna almenningssamgöngur, hvatastyrki, aðstöðu fyrir fólk með minnistruflanir, eflingu félagsþjónustu, uppbyggingu íþróttasvæðis, útiklefa við Sundhöll o.fl.

Sveitarfélagið Árborg er nú rekið með umtalsverðu tapi sem er bein afleiðing af bankakreppunni og falli krónunnar. Mikill vöxtur á þenslutíma kallaði á miklar fjárfestingar og skyndileg brotlending á byggingamarkaði er sveitarfélaginu dýr. Í þessum efnum sker Sveitarfélagið Árborg sig ekki frá öðrum sambærilegum sveitarfélögum en stendur um sumt mun betur en þau sem við berum okkur helst saman við. Þá hefur umtalsverður rekstrarbati orðið vegna aðhaldsaðgerða núverandi meirihluta.

Þrátt fyrir erfiðleikana er fjárhagsstaða sveitarfélagsins sterk og munar þar mestu að sveitarfélagið hefur ekki selt frá sér dýrmætar eignir eins og hitaveitu eða skólahúsnæði. Í stað dulinna skuldbindinga býr sveitarfélagið yfir duldum eignum þar sem eignfærsla vegna veitumannvirkja og fleiri eigna eru undir markaðsverði. Eignastaða Árborgar er því í reynd viðunandi þrátt fyrir að verulega hafi gengið á hana við fall íslensku krónunnar og verðbólgu liðinna missera. Þetta verða menn að hafa í huga þegar skoðað er eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs.

Aðhaldsaðgerðir í kjölfar bankahrunsins hafa skilað verulegum árangri og raunar betri en búist var við samkvæmt nýjum ársreikningi fyrir árið 2009. Þannig er afkoman 2009 sextíu og sex milljón krónum hagstæðari en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun og munar þar miklu að almennur rekstrarkostnaður er 80 milljón krónum lægri en í fjárhagsáætlun. Þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir að afgangur verði af rekstri sveitarfélagsins árið 2013.  

VG í Árborg leggur áherslu á að þessi markmið náist og mun ekki fara inn í kosningabaráttuna 2010 með  kostn-aðarsöm kosningaloforð. Við setjum mark okkar á að niðurskurður bitni sem minnst á velferðarþjónustu og að forðast verði eftir mætti að grípa til uppsagna.

Í sparnaðaraðgerðum verði frekar dregið úr starfssemi en að leggja hana af, starfshlutfall frekar lækkað og yfirvinna minnkuð frekar en að leggja niður stöður og sveitarfélagið leggi þannig sitt af mörkum til að verja störf og hamla atvinnuleysi.

Vinstri grænhreinar línur


Skipulagsmál

Haustið 2008 hrundi ekki bara bankakerfið á Íslandi heldur bygginga- og fasteignamarkaður sömuleiðis. Hið síðarnefnda hrun hafði jafnvel meiri áhrif á fjárhag og uppbyggingu í Árborg en sjálft fjármálahrunið. Gríðarlegar væntingar voru fram að þessum tíma um vöxt byggðar í Árborg líkt og annarsstaðar í landinu og fjölmargir einkaaðilar lögðu í framkvæmdir sem síðar stöðvuðust og munu ekki skila arði næstu árin.

Hluti af þessum fyrirætlunum var stórfelld uppbygging miðbæjarkjarna á Selfossi og blokkarbyggingar í gamla Mjólkurbúshverfinu. Nú er ljóst að ekki verður af þessum fyrirætlunum á næstu árum og framboð VG í Árborg telur brýnt að endurmeta skipulagsmál með tilliti til breyttra aðstæðna í samvinnu við lóðarhafa.

Mikilvægt er að næstu ár nýtist hið opna rými í miðbænum eins og það kemur fyrir án frekari uppbyggingar. Meðan ekki hefur verið byggt á gömlu Hafnar- og Sigtúnalóðunum er engu að síður mögulegt að svæðið geti gagnast til að hleypa nýju lífi í þetta miðjusvæði Selfossbæjar. Þar kemur til greina ferðaþjónusta, útivistarafþreying, leik-vellir og fleiri kostir.  

VG í Árborg vill stuðla að því að sett verði upp markaðstjald á svæðið yfir sumarmánuðina þar sem handverksfólk, smásalar og listafólk getur komið sér á framfæri og lífgað upp bæjar­stemmning­una.

Til lengri tíma litið leggur VG í Árborg áherslu á að menn missi ekki sjónar á þeirri stefnu að byggja upp miðbæ þar sem þekkingarstarfsemi er kjarna-starfsemi í bland við annan rekstur sem dregur að fólk allt árið um kring.

Í gamla Mjólkurbúshverfinu er brýnt að hlú að þeirri byggð sem þar er og leita leiða til að gera lóðirnar næst Austurvegi þannig úr garði að sómi sé að fyrir bæjarfélagið.

Á Eyrarbakka og Stokkseyri leggur VG í Árborg áherslu á að varðveita og hlú að þeim einstöku byggingasögulegu perlum sem gömlu bæjarhlutarnir þar eru. Ný uppbygging á þessum stöðum taki nú sem fyrr mið af hinni lágreistu og mannvænlegu byggð sem á stöðunum er.

Svigrúm til framkvæmda á komandi kjörtímabili verður minna en oft áður. Engu að síður telur VG í Árborg brýnt að á kjörtímabilinu verði unnið að fegrun og endurbótum á miðbæjarsvæðum allra þéttbýliskjarnanna í Árborg.

Vinstri grænhreinar línur


Atvinnumál

VG í Árborg leggja sem fyrr áherslu á sjálfbæra atvinnustefnu og fjölbreytni í atvinnumálum. Vg leggur mikla áherslu á að atvinnuuppbygging sé í takt við þá atvinnustarfsemi sem ríkir helst á Suðurlandi þ.e. landbúnað, ferðaþjónustu, verslun og þekkingarstarfsemi. Stóraukning á atvinnutengdri þekkingar-starfsemi í tengslum við Háskólafélag Suðurlands, Landnotkunarsetur HÍ á Selfossi, Jarðskjálftamiðstöð, Land-græðsluna og aðrar þekkingarstofnanir er lykilatriði í atvinnuuppbyggingu í Árborg.

VG í Árborg hafnar stóriðju, sem byggir á ofnotkun náttúruauðlinda og gengur á þá fáu virkjanakosti sem þjóðin á enn eftir fyrir sig og komandi kynslóðir.

Sveitarfélög eru mikilvægir vinnu-veitendur þar sem kemur að lögbundnum verkefnum þeirra. Að stærstum hluta hlýtur þó atvinnusköpun að liggja hjá íbúunum sjálfum. Hlutverk sveitarfélagsins er að veita eðlilega og trausta umgjörð utan um líflega atvinnuuppbyggingu.

Á þeim þenslutíma sem bankabólan íslenska veitti forgöngu fækkaði fyrirtækjum umtalsvert og þau urðu stærri þannig að verulega dró úr samkeppni. Þetta dró einnig forræði atvinnulífs í Árborg burt úr sveitarfélaginu í hendur stórfyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu.

Mörg þessara fyrirtækja eru nú komin að fótum fram og við teljum mikilvægt að við endurreisn gefist heimamönnum kostur á að koma að rekstrinum að nýju.

Þannig leggur sveitarfélagið rækt við þann mannauð sem er á svæðinu. Við leggjum áherslu á að við endurreisnina verði horft til jafnréttissjónarmiða.

Við atvinnuuppbygginu er ekki síður mikilvægt að horfa til þeirrar þekkingar og reynslu sem íbúar af erlendum uppruna búa yfir. Í fjölmenningarsamfélagi eru ótal vaxtarmöguleikar sem VG leggur áherslu á að virkja. Því er afar mikilvægt að taka höndum saman við íbúa af öðru þjóðerni og styðja við viðleitni þeirra til að ná betri tökum á búsetu í íslensku samfélagi og starfa þar að fjölbreyttum verkefnum þar sem sérstaða þjóðanna getur notið sín.

VG í Árborg vill koma á fót nýsköpunarsjóði á vegum sveitarfélagsins sem hefði fjárráð til að styrkja sprotafyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki sem stofnuð eru í sveitarfélaginu eða hyggja á flutning í sveitarfélagið.

Sveitarfélagið Árborg leggur áherslu á aðstoð við fólk sem lent hefur útaf vinnumarkaði og rekur í því skyni Smiðjuna sem er þjónustu- og nýsköpunarmiðstöð. VG í Árborg leggur áherslu á að efla það starf enn frekar.

Vinstri grænhreinar línur

Velferðarmál

Stjórnvöld stefna nú að því að flytja málefni fatlaðra og aldraðra yfir til sveitarfélaga. VG í Árborg telur mikilvægt að við yfirfærsluna ráði félagsleg sjónarmið ferðinni frekar en sókn til aukinnar einkavæðingar og gróðasjónarmið.

Í yfirstandandi efnahagskreppu hefur þörf fyrir fjárhagsaðstoð til einstaklinga aukist sem og önnur velferðarþjónusta. Þó svo að ríki og sveitarfélög sjái nú til lands í efnahagsþrengingum er enn mikill vandi sem steðjar að mörgum heimilum og þar gegna sveitarfélögin ekki minna hlutverki en ríkissjóður. VG í Árborg telur að með samstarfi við ríkisvaldið megi grípa hér inn í og milda það inn-heimtuferli sem nú vofir yfir fjölmörgum heimilum.

Sveitarfélögin hafa skyldur við þau heimili og þá einstaklinga sem versta hafa orðið úti í efnahagshruninu og það ber að leita allra leiða til að tryggja framfærslu, friðhelgi heimila, hag barnafólks og reisn þeirra sem leita þurfa aðstoðar. Í þessum efnum er fjárhagsaðstoð við þá sem minnst mega sín eitt af grunnatriðum velferðarþjónustunnar. VG mun leggja áherslu á að þar sé hvergi slakað á.

Félagslegar íbúðir sveitarfélagsins gegna lykilhlutverki í velferðarþjónustu sveitar-félagsins og þar leggst VG í Árborg gegn öllum hugmyndum um sölu.

VG í Árborg telja það forgangsmál að strax og tekist hefur að ná fram hallalausum rekstri sveitarfélagsins verði stigið skref til lækkunar á leikskóla-gjöldum, með það í huga að leikskólinn verði með öllu gjaldfrjáls 2015. Í dag greiða foreldrar innan við 20% af rekstrarkostnaði leikskólans.

Öflug forvarnarstefna sveitarfélagsins, lifandi ungmennahús og traust samstarf við félagsstarf í bæjarfélaginu er allt atriði sem náðst hafa fram á yfirstandandi kjörtímabili og rækta þarf áfram.

VG í Árborg leggur áherslu á að við alla velferðarþjónustu sé horft til mismunandi þarfa þeirra sem henni er ætlað að þjóna. Hvort sem um er að ræða fatlaða, öryrkja, aldraða eða þá sem búa tímabundið við erfiðar aðstæður þá eru þetta ekki einsleitir hópar. Það sem einum hentar getur verið mjög óheppilegt fyrir annan þó báðir séu undir sömu skilgreiningu í opinberum gögnum. Við yfirtöku málaflokka aldraðra og fatlaðra er mikilvægt að félagsþjónusta sveitarfélagsins hlusti eftir því sem þjónustuþegar og almennt starfsfólk í þessum geirum hefur fram að færa.

Vinstri grænhreinar línur

Málefni aldraðra

Áætlanir um uppbyggingu Í Grænumörk á aðstöðu fyrir aldraða er úr sögunni. Þar var áætlað að koma m.a. fyrir aðstöðu til félags- og tómstundastarfs og líkamsræktar auk fjölda íbúða,  sem ætlaðar voru eldri borgurum til kaups eða leigu. 

Þessi nýja staða krefur sveitarfélagið um að gera nýja áætlun frá grunni, þar sem þjónusta við eldri borgara er stórbætt. Öll sú starfsemi sem ætlað var staður í Grænumörkinni er ákaflega mikilvæg ekki síst vegna þess mikla fjölda eldri borgara í nágrenninu og ekki síður vegna nálægðar við heilsugæslu , verslanir og miðbæjarstarfsemina. Vg mun leggja áherslu á að setja uppbyggingaráætlanir í forgang og m.a. kanna hvort uppbygging með hófstiltari hætti gæti orðið að veruleika í Grænumörkinni eða þar í kring sem þjónaði þörfum eldri borgara  og um leið tæki tillit til þeirrar sérstöðu sem Mjólkurbúshverfið hefur bæði í sögulegu og menningarlegu tilliti. Þær áætlanir sem nú eru runnar úti í sandinn eru ekki eini möguleikinn á svæðinu til að mæta þörfum eldriborgara og gæta annarra mikilvægra hagsmuna þeirra.

Auk þessa þarf að leita víðar í sveitarfélaginu eftir vænlegri aðstöðu til uppbyggingar, sem hentað getur þörfum eldra fólks  og rímar við þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir og fólk´þarf á að halda.

Þá leggur VG áherslu á að efla og viðhalda þeirri þjónustu og félagsstarfi sem eldri borgarar á Stokkseyri og Eyrarbakka hafa komið upp. Mikilvægt er að bærinn standi vörð um og efli enn frekar hjúkrunar- og dvalarheimili í sveitarfélaginu sem starfa á Kumbaravogi, Sólvöllum og H.Su.

Grunnatriði í stefnu Vg er að styrkja fólk eins lengi og það sjálft kýs og getur, að búa á eigin heimilum, en um leið að mæta þörfum þess þegar aldur og heilsa leyfir því ekki lengur að búa heima. Við viljum að fólk geti lifað með reisn frá vöggu til grafar og þar er enginn undanskilinn.

Vinstri grænhreinar línur

Umhverfismál

Sveitarfélaginu Árborg ber að vera áfram í forystu í umhverfismálum og þegar hafa verið stigin mikilvæg skref í þá veru. Ráðinn hefur verið sérstakur umhverfissérfræðingur til sveitarfélagsins sem gjörbreytir allri umfjöllun og aðkomu þessa málaflokks í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Stigin hafa verið skref í rétta átt í sorphirðumálum og mikilvægt að sveitarfélagið hafi í samstarfi við önnur sveitarfélög á Suðurlandi full umráð yfir þeim mála­flokki. VG leggst gegn því að umsýsla sorpvinnslunnar sé afhent einkaaðilum þó sjálfsagt sé að bjóða út einstaka þætti.

Fuglafriðland í Flóagaflsmýri er einn af merkari áföngum Sunnlendinga í umhverfisvernd og VG leggur áherslu á áframhaldandi uppbyggingu svæðisins. Þá hefur verið unnið að stígamálum með hjóla- og hestamönnum og þar eru áfram fjölmörg verkefni fyrirhuguð.

Með nýrri reiðleið milli Selfoss og strandarinnar opnast möguleikar á að malbika reiðveginn með Eyrarbakkavegi fyrir reiðhjólamenn. VG í Árborg mun beita sér fyrir þeim framkvæmdum. Stígar fyrir göngufólk eru ekki síður mikilvægir og þar viljum við m.a. kanna möguleika á endurbyggingu gamla Hellismýrarvegarins milli Hellisskógar og Ingólfsfjalls.

Íbúar í Árborg hafa skyldur gagnvart náttúruperlum á Suðurlandi öllu. VG í Árborg tekur því afstöðu til framkvæmda allsstaðar á Suðurlandi sem ganga gegn þeirri umhverfisstefnu sem VG hefur markað sér í landsmálum. Þegar kemur að óafturkræfum náttúruspjöllum í héraðinu teljum við að stærsta sveitarfélags Suðurlands geti ekki setið hjá heldur hljóti að beita sér innan þeirra marka sem eðlilegt er út frá samstarfi sveitarfélaga á svæðinu. Sveitarfélagið Árborg hefur hér siðferðlegar og pólitískar skyldur.

Vinstri grænhreinar línur

Mennta- og menningarmál

Mennta- og menningarmál er einn fyrirferðamesti málaflokkur sveitarfélag-anna í landinu. Sveitarfélagið Árborg sem á sér stórt bakland í ná­grannabyggðum verður að leggja mikinn metnað og afl í þróun og uppbyggingu skólamála. Skólastarf og önnur menningarstarfssemi eru mikilvægir vaxtabroddar atvinnulífs og framfara í héraðinu.

VG í Árborg leggur áherslu á að efla metnað í leikskóla- og grunnskólastarfi, meðal annars með auknum og gagnvirkum tengslum foreldra og skóla. Fjölbrautaskóli Suðurlands sem sinnir víðtæku framhaldsnámi er mikilvægur vinnustaður í sveitarfélaginu og aflvaki framfara.

Skólastefna sveitarfélagsins þarf stöðugt að vera í endurskoðun,  áfram ber að hlúa að öflugu forvarnarstarfi og vinna gegn einelti á öllum sviðum skólastarfs.

Næstu skref í skólamálum er áframhaldandi uppbygging vaxtasprota á sviði æðri menntunar. Þar má nefna fag-akademíur F.Su., Háskólafélag Suðurlands, Landnýtingasetur HÍ og fleiri aðila. Símenntun og endurmenntun á svæðinu eru ekki síður mikilvægir þættir í uppbyggingu þekkingarsamfélags á svæðinu. Við uppbyggingu þekkingarsamfélags munu náttúrulegar auðlindir og sérstaða einnig gegna lykilhlutverki og má þar að nefna Fuglafriðland í Flóagafli, Ölfusá sem er vatnsmesta á landsins og fjöruna.

Framtíðarskipulag gerir ráð fyrir uppbyggingu þekkingarstarfsemi í miðbæ Selfoss en ljóst er að nokkur dráttur mun þar verða á framkvæmdum. Þess mikilvægara er að huga að innviðum þeirra stofnana og vaxtasprota sem hér um ræðir.

Það sama gildir um almennt skólastarf í bæjarfélaginu. Sveitarfélagið Árborg hefur fjárfest mjög myndarlega í húsnæði fyrir leikskóla og grunnskóla á undanförnum árum.

Vegna aðstæðna í samfélaginu er ekki unnt að gera ráð fyrir að byggður verði nýr skóli á Eyrarbakka á kjörtímabilinu. VG leggur því áherslu á að unnið verði markvisst að viðhaldi Barnaskólans á Eyrarbakka þannig að aðstaða fyrir nemendur og starfsfólk verði boðleg og sambærileg því sem tíðkast annarsstaðar í sveitarfélaginu. VG í Árborg stendur vörð um að áfram verði starfandi grunnskóladeild á Eyrarbakka.

VG leggur áherslu á að unnið sé áfram með hugmyndina um Skólasögusetur íslands á Eyrarbakka þrátt fyrir að aðstæður hafi breyst. VG telur að Skólasögusetur væri kærkomin viðbót við safna-  og menningarflóru staðarins.

Vinstri grænhreinar línur

Áhersluatriði

Sveitarfélagið Árborg fylgi áfram varfærinni stefnu í fjármálum bæjarins. Við erum andvíg því að farið sé í áhættusamar skyndilausnir í fjármálum.


Sveitarfélagið Árborg hefur í kjölfar hrunsins 2008 gengið í gegnum mikla fjárhagslega erfiðleika eins og öll sambærileg sveitarfélög í landinu. Þrátt fyrir það horfir nú árið 2010 betur í rekstri, sparnaðaraðgerðir hafa skilað árangri og með styrkri stjórn mun sveitarfélagið skila hagnaði á komandi kjörtímabili.


Sveitarfélagið Árborg hefur fjárfest myndarlega á undanförnum árum og því ekki sjáanleg þörf á stórum fjárfestingum á komandi kjörtímabili.


Sveitarfélagið Árborg hefur ríkar skyldur við þau heimili og þá einstaklinga sem verst hafa orðið úti í efnahagshruninu og ber að leita þar allra leiða til að tryggja framfærslu, friðhelgi heimila, hag barnafólks og reisn þeirra sem leita þurfa aðstoðar.


VG í Árborg mun beita sér af alefli fyrir lausnum á skuldavanda heimilanna í samvinnu við ríkisvaldið og fulltrúa VG í landsstjórninni.

Fjárhagsaðstoð til þeirra sem minnst hafa og minnst mega sín er eitt af grunnatriðum velferðarþjónustunnar og mun VG leggja áherslu á að þar sé hvergi slakað á og fremur bætt í frá því sem nú er.


VG í Árborg leggur áherslu á gjaldfrjálsan leikskóla og gjaldfrjálsar skólamáltíðir, þrátt fyrir að aðstæður hafi orðið til þess að ekki hefur tekist að stíga þessi skref á kjörtímabilinu.


VG í Árborg leggur áherslu á að efla metnað í skólastarfi, m.a. með aðkomu foreldra að innra starfi skólanna. Við viljum standa vörð um að skólahald á Eyrarbakka en teljum ekki raunhæft að stefna að nýbyggingu skólahúss þar á komandi kjörtímabili eins og sakir standa.

 

Í skipulagsmálum sveitarfélagsins þarf á næstu árum að fara fram gagngert endurmat í kjölfar breytinga og samdráttar sem orðið hafa á íslenskum byggingamarkaði og viðhorfum í kjölfar bankakreppunnar. Við endurmat á skipulagsmálum verður lögð rík áhersla á að horfa til umhverfissjónarmiða og að skipulag sé unnið með velferð íbúanna að leiðarljósi og hagsmunir þeirra settir ofar hagsmunum framkvæmdaaðila.


Í atvinnumálum er frumskylda sveitarfélagsins að veita að veita trausta umgjörð fyrir atvinnurekstur í höndum heimamanna. Í stað þeirrar þróunar frjálshyggjutímans að forræði atvinnurekstrar færist frá heimamönnum til stórfyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu viljum við efla þátttöku heimamanna í atvinnurekstri.


Í umhverfismálum hefur margt áunnist á yfirstandandi kjörtímabili og brýnt er áfram sé unnið á sömu braut. Þar má nefna eflingu og uppbyggingu almenningssamgangna, þróun gámasvæðis og sorphirðumála í framhaldi af áður markaðri stefnu sveitarfélagsins og að hlúð verði að fuglafriðlandi á Ölfusárbökkum, m.a. með endurheimt votlendis innan sveitarfélagsins.


Eflingu háskólastarfs, endurmenntunar og símenntunar í sveitarfélaginu. Uppbygging þekkingarstarfsemi á grundvelli rannsókna sem á rætur í náttúru og samfélagi á Suðurlandi er afar mikilvægt áhersluatriði. Tenging þekkingarstarfseminnar við uppbyggingu ferðamannaþjónustunnar t.d. farháskóla Íslands er mikilvægt sóknarfæri, sem skilar fljótt bæði tekjum og atvinnu.


VG í Árborg leggur áherslu á að við skipulagsmál í sveitarfélaginu verði horft til þess að verja gjöful landbúnaðarlönd sveitarfélagsins fyrir raski sem hamlað getur framtíðarmöguleikum svæðisins til fæðuframleiðslu.


VG í Árborg leggst gegn öllum hugmyndum um sölu félagslegra íbúða í eigu sveitarfélagsins.

 

Deila

Vinstri grænhreinar línur