Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar

Lög:

Lög Vinstri grćnna í Árborg

1. grein
Félagið heitir Vinstrihreyfingin grænt framboð í Árborg. Heimili þess og varnarþing er hjá formanni félagsins á hverjum tíma.

2. grein
Markmið félagsins er að standa að framboði til sveitarstjórnar í Sveitarfélaginu Árborg og önnur staðbundin verkefni sem samrýmast stefnu VG.

3. grein
Félagar í VG í Árborg geta orðið þeir sem styðja markmið félagsins og flokksins og eru ekki í öðrum stjórnmálaflokkum.

4. grein
Aðildarumsóknir nýrra félagsmanna skulu berast til stjórnar félagsins. Félagið skal reglulega senda breytingar á félagatali til skrifstofu flokksins sem heldur félagaskrá.

5. grein
Félagið er svæðisfélag sem tekur til Sveitarfélagsins Árborg.

6. grein
Félagið hefur sjálfstæðan fjárhag og skipar málum sínum sjálft í samræmi við lög flokksins.

7. grein
Félagið starfar innan Suðurkjördæmis þar sem svæðisfélög VG mynda með sér kjördæmisráð. Félagið kýs fulltrúa í kjördæmisráð sem nemur einum fyrir hverja fimm félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Kjördæmisráð sér um framboð til Alþingis og fer með önnur verkefni á sínu starfssvæði samkvæmt ákvörðun svæðisfélaganna eða flokksstjórnar.

8. grein
Samþykktir félagsins eru í samræmi við lög flokksins. Félagið heldur aðalfund árlega sem skal boða skriflega með að minnsta kosti sjö sólarhringa fyrirvara. Aðalfund skal halda ár hvert fyrir veturnætur. Árlega skal félagið senda

 

skrifstofu flokksins upplýsingar um stjórn félagsins, ársreikninga og starfsemi á liðnu ári.

9. grein
Aðalfundur kýs árlega 5 menn í stjórn, þ.e. formann og fjóra meðstjórnendur sem skipta með sér verkum. Einnig kýs aðalfundur tvo skoðunarmenn reikninga. Á aðalfundi skal flutt skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og reikningar félagsins lagðir fram og bornir undir atkvæði. Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi. Reikningsár félagsins er almanaksárið.

10. grein
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Í öllum málum ræður einfaldur meirihluti atkvæða ef ekki er öðru vísi ákveðið í samþykktum þessum.

11. grein
Landsfundur hefur æðsta vald í öllum málum VG. Félaginu er skylt að láta fara fram kosningu fulltrúa á landsfund úr hópi félaga sinna. samkvæmt lögum VG.

12. grein
Formaður VG í Árborg á sæti í flokksráði Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs samkvæmt lögum flokksins.

13. grein
Samþykktum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi og telst breyting samþykkt ef hún hlýtur 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillögur um lagabreytingar skulu berast formanni minnst þremur dögum fyrir aðalfund og þær sendar félagsmönnum.

14. grein
Verði félagið lagt niður skal eignum þess ráðstafað af stjórn kjördæmisráðs í Suðurkjördæmi.

Samþykkt á aðalfundi félagsins 10. mars 2012

 



 

 

Vinstri grćn hreinar línur