Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
 
 



Útgefið efni:




Tenglar:



vg.is



vinstri.is




Smugan




Sveitarfélagið Árborg

  Fréttir:



ganga í flokkin
styrkja flokkinn
senda línu


 
   

Nýjar greinar:

Gerum hreint fyrir dyrum sorpsins
- Andrés Rúnar Ingason

Meðan meirihutinn í bæjarstjórn Árborgar gerir ekki skilmerkilega grein fyrir vinnubrögðum við útboð á sorphirðu í bæjarfélaginu, lætur hann félaga sína liggja undir ámæli um óeðlilega hagsmunagæslu í málinu. Hvernig var að staðið og hvað fór úrskeiðis? Vinnubrögð við útboð sorphiðunnar hér í bæ eru með þeim hætti að fólk finnur ekki á þeim eðlilegar skýringar og þá er svo auðvelt að ætla þeim óeðlilegar skýringar. Erum við stödd í sápuóperunni um Sópranós í sorpinu? Eða hvað ...?
Lesa meira


Vörumst milljóna flumbrugang
- Andrés Rúnar Ingason

Þann 31. mars s.l. skrifaði ég grein í Dagskrána um virkjunaráform í Ölfusá við Selfoss. Þar boðaði ég að við í VG myndum "fylgjast vel með öllum áætlunum og gögnum sem að baki þeim búa og skoða þau á gagnrýninn hátt."

Samkvæmt framlagðri áætlun á kynningar- og samráðsferli nú að vera að ljúka og leyfisferli og undirbúningur framkvæmda að vera nýhafin. Raunin er sú að engin frekari kynning eða samráð hefur átt sér stað. Minni ég á að fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar lagði Vg mikla áherslu á aðkomu íbúa að öllum veigamiklum ákvörðunum í sveitarfélaginu.

Lesa meira

Hvað með Selfossvirkjun?
- Andrés Rúnar Ingason

Ég fór á kynningarfund Sjálfstæðismanna um Selfossvirkjun, sem haldinn var á Hótel Selfossi s.l. fimmtudag. Þetta var fróðlegur fundur, þar sem efasemdir, skiptar skoðanir og fjöldi spurninga komu fram.

Á fundinum varð mér ljóst að undirbúningsferli fyrir virkjunina er á fleygiferð. Komin er tímaáætlun þar sem virkjunin verður tekin í gagnið árið 2014, eftir 3 ár. Fjárhagsáætlun liggur fyrir í grófum dráttum.

Lesa meira

Að setja Ölfusá í fjötra
- Ingibjörg Elsa Björnsdóttir

Ég er friðsöm manneskja. Helst af öllu vil ég sitja heima í hægindastól við hlið bókahillunnar og lesa heimsbókmenntir í rólegheitunum og drekka sítrónu- og engiferte með hunangi. Sem minnst vil ég vita af gangi heimsmálanna, og ef það kæmi styrjöld mundi ég minnast viturlegra orða norska prófessorsins sem sagði er Noregur var hernuminn – stríð eru stríð - þau hafa alltaf fylgt mannkyninu - en gefðu mér nú frið til að halda áfram að stúdera.
Lesa meira


Ölfusárvirkjun, nokkrar vangaveltur
- Sigfinnur Snorrason

Á undanförnum mánuðum hefur meirihlutinn í Bæjarstjórn Áarborgar látið skoða möguleikana á því að virkja Ölufsá. Slík virkjun myndi nýta sér fall árinnar í gegnum bæjarfélagið og framkvæmdin tengist væntanlegum brúarframkvæmdum vegan hins nýja Suðurlandsvegar norðan við bæinn. Haldinn var íbúafundur þann 4. nóvember 2010 til að kynna íbúum þessar hugmyndir.
Lesa meira



 
   

arborg.is
Heimasíða Sveitarfélagsins Árborgar

eyrarbakki.is
Heimasíða Eyrarbakka

stokkseyri.is
Heimasíða Stokkseyrar