
Ágæti kjósandi
Kosningaloforð VG í bæjarstjórnarkosningunum á laugardaginn er eftirfarandi. Við
ætlum að vinna af heiðarleika og gera okkar besta.
Heimilin í landinu, fyrirtækin, sveitarfélögin og ríkissjóður standa frammi fyrir
erfiðu verkefni þar sem reynir á og engar töfralausnir bjóðast. Það er ábyrgðarlaust
að lofa íbúum að leysa fjárhagsvanda sveitarsjóðs eins og hendi væri veifað eða að
hægt verði að útrýma atvinnuleysi í bæjarfélaginu á einu misseri.
En við sem bjóðum okkur fram fyrir VG teljum að með varfærnum skrefum megi
ná þeim árangri að rétta við rekstur bæjarsjóðs eftir áföll bankahrunsins og byggja
atvinnulífið upp með traustri umgjörð. Stefnumál okkar að stofna nýsköpunarsjóð
atvinnulífsins fyrir ný sprotafyrirtæki er mikilvægt skref í þeirri baráttu. Þar liggja
áherslur okkar og grunnur samfélagsins.
Við viljum framar öllu verja þá velferðar- og félagsþjónustu sem hér er og gæta að
hagsmunum allra íbúa sveitarfélagsins í þeirri kreppu sem nú ríður yfir. Þar skiptir
miklu að sveitarfélagið sé í stakk búið til að veita þá aðstoð sem kallað er eftir. Til að
svo megi verða treystum við á kjósendur næstkomandi laugardag.
Árborg á bjarta framtíð í samfélagi okkar allra á ábyrgð okkar allra.
Framjóðendur VG í Árborg 2010
Hægt er að lesa blaðið í heild sinni hér