Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
31.03.2011
Hvað með Selfossvirkjun?

Ég fór á kynningarfund Sjálfstæðismanna um Selfossvirkjun, sem haldinn var á Hótel Selfossi s.l. fimmtudag. Þetta var fróðlegur fundur, þar sem efasemdir, skiptar skoðanir og fjöldi spurninga komu fram.

Á fundinum varð mér ljóst að undirbúningsferli fyrir virkjunina er á fleygiferð. Komin er tímaáætlun þar sem virkjunin verður tekin í gagnið árið 2014, eftir 3 ár. Fjárhagsáætlun liggur fyrir í grófum dráttum.

Ætlun Sjálfstæðismanna er að drífa umhverfismat hratt í gegn og annar undirbúningur bíður ekki eftir niðurstöðum þess. Verið er að undirbúa hönnun og fjármögnun.

Það vekur athygli mína að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir þetta ár og næstu þrjú gerir hvergi nærri ráð fyrir þeim undirbúningskostnaði sem í þessum áætlunum felast. Því liggja ekki fyrir heimildir til ætlaðra fjárhagsskuldbindinga eða útláta.

Hvað vilja Vinstrigræn gera?

Við höfnum því ekki fyrirfram að Ölfusá verði virkjuð við Selfoss. Aftur á móti setjum við alvarlega fyrirvara við núverandi áætlun, einkum út frá tvennu, að framkvæmdahraði sé af meira kappi en forsjá og að umhverifsáhrif verði ásættanleg bæði fyrir lífríki og ásýnd.

Við í VG ætlum að ljá þessu verkefni jarðsamband, með því að fylgjast vel með öllum áætlunum og gögnum sem að baki þeim búa og skoða þau á gagnrýninn hátt. Þar munum við líta eftir fjárhagslegri áhættu íbúa sveitarfélagsins, raunhæfi kostnaðar- og tekjuáætlana, umhverifsáhrifa og að bæði verði löglega að staðið og samráðs gætt. Á fundi veitustjórnar þann 9. mars hafnaði meirihlutinn tillögu okkar um að fá óháðan aðila til að leggja mat á þessi áform. Eftirlit okkar er því enn brýnna og krefjumst við fulls aðgengis að öllum gögnum og samráðs áður en ákvarðanir eru teknar.

Í samræmi við stefnu VG fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar viljum við að þessi áform verði borin undir íbúakosningu. Þetta er ekki hvað síst mikilvægt af því þessi áform lágu ekki fyrir þegar gengið var til síðustu bæjarstjórnarkosninga og því hefur enginn fengið umboð til þessa. Þetta þarf að gerast sem fyrst og til þess þurfa nægar upplýsingar að liggja fyrir, en þar eru glærusýningar með áformum ekki nóg. Ekki er síður mikilvægt að það gerist áður en stór fjárútlát og mikilvægar skuldbindingar hafa átt sér stað.

Æskilegt finnst mér að bæjarstjórn standi fyrir opnum kynningum með þátttöku allra bæjarfulltrúa, en ekki bara sumra sjónarmiða. Mikilvægast af öllu er samt að við íbúar sveitarfélagsins séum sjálf árvökul í þessu máli og gerum kröfu um að fá allar upplýsingar.

Andrés Rúnar Ingason
Formaður Vinstri grænna í Árborg

Greinin birtist í Dagskránni 31. mars 2011.

Deila