Þann 31. mars s.l. skrifaði ég grein í Dagskrána um virkjunaráform í Ölfusá við Selfoss. Þar boðaði ég að við í VG myndum “fylgjast vel með öllum áætlunum og gögnum sem að baki þeim búa og skoða þau á gagnrýninn hátt.”
Samkvæmt framlagðri áætlun á kynningar- og samráðsferli nú að vera að ljúka og leyfisferli og undirbúningur framkvæmda að vera nýhafin. Raunin er sú að engin frekari kynning eða samráð hefur átt sér stað. Minni ég á að fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar lagði Vg mikla áherslu á aðkomu íbúa að öllum veigamiklum ákvörðunum í sveitarfélaginu. Þessi er svo sannarlega ein af þeim og því mun kröfu um samráð verða fylgt fast eftir. Það er of seint að berja búsáhöldin sín á torgum eftir að skaðinn er skeður.
Eins og fram hefur komið með greinaskrifum tveggja landeigenda við Ölfusá, hefur ekkert samráð verið haft við þá heldur, m.a. ekki um vatnsréttindi. Engum af þeim fjölmörgu spurningum sem fram hafa komið hefur verið svarað. Eru það þó ekki léttvægar spurningar, t.d. um breytta ásýnd árinnar, áhrif á fiskgengd og annað lífríki, áhrif á heitavatnsborholur ofan fyrirhugaðrar stíflu, flóðavarnir, vatnsréttindi, reynslu af þeirri túrbínu sem kynnt var og þá aðeins til í tölvulíkani og síðast en ekki síst, eignarhaldi og fjármögnun. Aðrir virkjanakostir hafa heldur ekki verið teknir til skoðunar eða samanburðar.
Nú þegar er búið að verja tug milljóna í þessi áform og ef fram fer munu hundruð milljóna bætast þar við. Ég vara alvarlega við því að fjárhag sveitarfélags okkar sé ógnað með flumbrugangi við ráðstöfun tuga milljóna króna. Vinnubrögð hingað til vekja kvíða um það sem framundan er. Þó er sú von að einn bæjarfulltrúa meirihlutans, Elva Dögg Þórðardóttir, virðist vera að reyna að fá félaga sína til að stíga á bremsuna og lita til beggja hliða áður en ætt er lengra áfram. Lærum af mistökum Sjálfstæðisflokksins á Suðurnesjum og látum þau ekki endurtaka sig hér. Sjáum fjölbreytta möguleika og festumst ekki í fokdýrri meinloku.
Vatnið í Ölfusá er ekki að þverra í bráð og við höfum nægan tíma til að flýta okkur hægt. Við svo dýra og afdrifaríka framkvæmd sem virkjun Ölfusár við Selfoss er, skiptir miklu máli að vanda undirbúning og hafa íbúa með í ráðum. Það eru jú við íbúarnir sem berum afleiðingarnar, hverjar sem þær verða. Hér á að stoppa og leggja málið fyrir íbúa í haust.
Bæjarstjórn Árborgar hefur af nógu að taka þegar hún vill leggja sitt fram um að efla atvinnu hér í héraði. Í dag þarf að verja þann stóra vinnustað sem Litla-Hraun er og frekari uppbyggingu þar. Efldar samgöngur með Suðurstrandarvegi og breikkun vegarins um Hellisheiði og breyttar samgöngur við Vestmannaeyjar, skapa ný tækifæri fyrir Árborg. Hér eru bestu aðstæður til landbúnaðar á Íslandi og þeim á að fylgja eftir með úrvinnslu og markaðssókn.
Andrés Rúnar Ingason
Formaður Vinstri grænna í Árborg
Greinin birtist í Dagskránni 30. júní 2011.