Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
29.04.2010
Vörðum nýja leið í atvinnumálum

Á síðustu misserum í kjölfar efnahagskreppu og samdráttar á flestum sviðum atvinnulífsins, með tilsvarandi atvinnuleysi hafa augu manna opnast betur fyrir því að leita verður nýrra leiða til atvinnusköpunar í Árborg. Byggja þarf upp nýja atvinnustefnu, þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu og uppbyggingu léttiðnaðar úr innlendu hráefni sem undirstöðu atvinnusköpunar. Einnig þarf að leggja þunga áherslu á uppbyggingu fangelsismála í sveitarfélaginu með stækkun fangelsisins á Litla Hrauni enda þörfin brýn í þessum málaflokki og uppbygging þar, getur skipt sköpum fyrir sveitarfélagið. Þá er þjónusta við landbúnaðinn þýðingarmikil og hana má efla enn frekar.

Á Eyrarbakka og Stokkseyri hefur skapast jarðvegur fyrir ferðaþjónustutengda atvinnustarfsemi og brýnt að hlúa að þeim sprotum sem nú þegar hafa skotið rótum. Á ströndinni er enn óplægður akur fyrir aðila í ferðaþjónustu, enda njóta strandbyggðirnar stöðugt vaxandi vinsælda ferðafólks bæði innlendra sem erlendra. Með því að aðstoða þessa grein við markaðssetningu hér heima og erlendis, getum við vænst þess að uppskeran komi okkur öllum til góða og styrki skylda atvinnustarfsemi svo sem verslun og þjónustu.

Á Selfossi voru byggð fjölmörg iðnaðarhúsnæði á síðasta áratug, en dregið hefur úr nýtingu þeirra nú á samdráttarárunum eftir hrun. Með því að efla léttiðnað, handverk hverskonar, fata og textil iðnað úr innlendu hráefni og sækja fram á erlenda markaði má bæta flóru atvinnulífsins og styrkja atvinnustigið í sveitarfélaginu til muna. Með því að styðja við bakið á sprotum af þessu tagi, getum við horft fram á veginn á ný eftir þau áföll og ógöngur sem nýfrjálshyggjan hefur leitt okkur til.

Við Vinstri græn í Árborg erum tilbúinn til að takast á við þau verkefni sem bíða okkar í uppbyggingu atvinnulífsins í bæjarfélaginu og munum leggja nótt við dag við að koma málefnum sveitarfélagsins í viðunandi horf. Með uppbrettar ermar munum við leggjast á árarnar af fullum þunga og ef þú ert með okkur kjósandi góður, þá þurfum við engu að kvíða um framtíð okkar.

Óðinn Kalevi Andersen,
skipar 6. sæti á lista Vinstri grænna í Árborg

Greinin birtist í Dagskránni 29. apríl 2010