Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
27.05.2010
Veljum af varkárni

Kosningarnar á laugardaginn skipta máli fyrir hag okkar allra. Sveitarfélagið Árborg er skuldugt sveitarfélag og frá hruni hefur reksturinn verið með tapi. Um þetta er enginn ágreiningur og þessi staða er uppi í öllum sambærilegum sveitarfélögum í landinu.

Hér í Árborg hafa aftur á móti unnist mikilsverðir varnarsigrar í baráttunni og Árborg er ekki í hópi þeirra mörgu sveitarfélaga sem komin eru í gjörgæslu yfirvalda vegna skuldaóreiðu. Þar skiptir miklu að sveitarfélagið Árborg hefur ekki selt frá sér dýrmætar eignir eða leitað annarra skyndilausna á vanda sínum.

En vitaskuld voru gerð mistök í rekstri Árborgar á liðnu kjörtímabili og nægir þar að benda á óþarflega dýra skólabyggingu á Stokkseyri og lítilsháttar tap í peningamarkaðssjóðum. Gjöld eru hér líka í hærra lagi og ef svigrúm gefst þarf að lækka þau. Við þurfum að geta rætt þessi mál öll feimnislaust og læra af þeim.

En það voru líka teknar afdrifaríkar og mikilvægar ákvarðanir sem björguðu því að hér var ekki og er ekki óviðráðanleg skuldastaða. Það að slá út af borðinu stórkarlalegar hugmyndir Sjálfstæðismanna um dýrt fjölnota íþróttahús og nýja Sundhallarbyggingu á Selfossi er gott dæmi þar um. Í stað sundhallarbyggingar var farið í endurbætur á núverandi húsnæði og byggingu útiklefa þannig að við getum nú með stolti bent á sundlaugina okkar sem eftirsóknarverða ferðamannavin.

Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn gefið undir fótinn með nýja sundhöll og vill líka setja stórfé í Menningarsalinn í Hótelinu þó enginn viti fyrir víst hvort hann gagnist félagslífi hér á svæðinu. Hvoru tveggja er langt utan þess sem skynsamlegt getur talist.

Á kjörtímabilinu bíða okkar fjölmörg verkefni. Við þurfum að ganga í þau verkefni af heiðarleika og einurð. Til erum við og við treystum á ykkar atfylgi.

Þórdís Eygló Sigurðardóttir og Bjarni Harðarson
1. og 2. sæti framboðslista Vg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Árborg.

Greinin birtist í Dagskránni 27. maí 2010

Deila