25.05.2006
Vinstri græn tala íslensku!
“Þið talið íslensku, ég skil hvað þið eruð að fara,” sagði maður um daginn, sem ég hitti á förnum vegi. Þessi setning hefur fylgt mér og orðið uppspretta hugleiðinga um tungutak stjórnmálamanna. Mér fannst maðurinn staðfesta hugmyndafræði okkar Vinstri grænna í þessari einu setningu. Við komum fram fyrir fólk og segjum í eins fáum orðum og kostur er hvað við viljum, hvert við stefnum og hvað við ætlum að gera. Ekkert lýðskrum engan orðhengilshátt, við komum til dyranna eins og við erum klædd. Enda kemur í ljós að fólkið kann að meta stefnuskrá okkar sem útskýrir á ljósan hátt að við leggjum áherslu á samfélag fyrir venjulegt fólk þar sem jöfnuður á að ríkja. Áherslur okkar varðandi velferðarþjónustuna varðar alla sem hennar þurfa að njóta hvort sem þeir eru ungir eða aldnir. Við lítum svo á að sveitarfélagið Árborg sé stærsti þjónustuveitandi samfélagsins og leiðarljósið er jöfnuður og lýðræði. Særstu málin eru í raun þau að treysta félagslega undirstöðu fólksins í samfélaginu og mæta þeim aðilum sem eðlilegt og sjálfsagt er að mæta. Hvaða vit er í því að leikskólinn skuli vera eina skólastigið í landinu þar sem fólk er neytt til að greiða skólagjöld? Hreint ekkert vit! Hvaða vit er í því að strípaðar lífeyrisgreiðslur aldraðra og öryrkja skuli skattlagðar og eins hitt að takist þessu fólki að öngla saman fáeinum krónum aukalega þá skerðist lífeyrisgreiðslur? Heldur ekkert vit og fullkomin valdníðsla gagnvart öldruðu fólki! Hins vegar teljum við réttlætismál að þeir sem betur mega greiði skatt til samfélagsins og þar skipti heldur ekki máli hvort viðkomandi er ungur eða gamall. Tekjur sveitarfélagsins eru fengnar með sköttum, velferðarþjónustan, rekstur sveitarfélagsins og framkvæmdir byggjast á þessum tekjum. Skattar eru líka jöfnunartæki sem eiga að jafna aðstöðu fólksins og gera þeim kleift sem minna hafa úr að moða að njóta lífsgæða sem nútíminn hefur upp á að bjóða. Stóra málið er að skattleysismörkin eru alltof lág, þau þurfa að vera í vitrænu samhengi við raunveruleikann. Skattur af lágmarkslaunum á ekki að þekkjast. Hins vegar er nauðsynlegt að stórhækka hátekju- og fjármagnsskatt! Endurskoða þarf einnig tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga þannig að sveitarfélögunum sé gert kleift að sinna skyldum sínum gagnvart fólkinu.
Vinstri græn er flokkur réttlætis og lýðræðis, sem hlustar á fólkið og tekur mark á því. Við viljum ekki arka áfram í blindri sjálfumgleði, heldur hlusta eftir því hvernig hjarta samfélagsins slær. Hjarta samfélagsins slær í takt við líðan okkar, væntumþykju og ást okkar á hvert öðru. Vinstri græn eru með sterka samfélagsrödd sem fram að þessu hefur lítið heyrst, en nú eru þið að gefa okkur mál, kjósendur góðir. Við eigum samleið í “samfélagi fyrir okkur öll, á ábyrgð okkar allra.”
Við viljum samfélagslegan jöfnuð, ykkar er valið!
Jón Hjartarson,
skipar 1. sæti á lista VG í Árborg við komandi sveitarstjórnarkosningar