Vinstri hreyfingin grænt framboð hefur lagt fram lista fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Undirrituð leiðir listann og er stolt af þeim hópi sem þar er samankominn. Þetta er breiður hópur fólks með ólíkan bakgrunn, af báðum kynjum og á öllum aldri.
Tvennt eigum við þó öll sameiginlegt. Í fyrsta lagi viljum við leggja hönd á plóg við að koma sveitarfélaginu okkar, Árborg, í gegnum erfiða tíma. Í öðru lagi höfum við öll óbilandi trú á stefnu Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og mikilvægi hennar við endurmótun íslensks samfélag - stefnu sem byggir á fjórum grunnstoðum: Félagshyggju, umhverfisvernd, jafnrétti og félagslegri alþjóðahyggju.
Árborg stendur eins og öll sveitarfélög frammi fyrir gríðarlegum niðurskurði í ár og á næstu árum. Niðurskurður er aldrei sársaukalaus og við sem hér erum í þessu framboði gerum okkur grein fyrir því. Félagslegar áherslur Vinstri grænna eru sennilega aldrei mikilvægari en einmitt þegar minnka á umsvif hins opinbera. Það er okkar hlutverk að vera rödd þeirra sem lítið eða ekkert heyrist í. Við eigum að passa upp á hag þeirra sem minnst mega sín og eru því viðkvæmust fyrir köldum niðurskurðarhnífnum. Það er okkar hlutverk að forgangsraða af ábyrgð.
Við stöndum vörð um þær stéttir sem halda uppi mennta- og velferðarkerfinu og eru upp til hópa skipaðar konum. Við stöndum fyrir sjálfbæra þróun og erum málsvarar náttúrunnar þegar hin háværu hagsmunaöfl vilja leggja hana alla undir sig í von um stundargróða. Og við gefumst ekki upp þótt á móti blási!
Haustið 2008 hrundi heil hugmyndafræði til grunna en hún hafði verið ráðandi við alla stefnumótun svo árum skipti. Nú þarf að byggja upp á nýtt og áherslur Vinstri grænna skipta sköpum við þá uppbyggingu. Baráttan fer bæði fram á landsvísu og á sveitarstjórnarstiginu – í helsta nærumhverfi fólks. Við í þessu framboði erum aðeins lítill angi, en um leið mjög mikilvægur, af þessari baráttu. Hún vinnst ekki með einum einstaklingi, heldur einmitt mörgum.
Ég er stolt, eiginlega bara dálítið montin, yfir því að fá að leiða lista Vinstri grænna í Árborg. Ég er líka stolt yfir að taka við keflinu af Jóni Hjartarsyni, sem hefur staðið Vinstri grænu vaktina hér í Árborg með miklum sóma. Mig langar að nota tækifærið að þakka honum góð störf. Nú er það okkar verkefni að snúa bökum saman í þeirri stuttu og snörpu kosningabaráttu sem framundan er. Notum tímann vel. Fram til sigurs í vor!
Þórdís Eygló Sigurðardóttir
Höfundur er forstöðumaður Sundhallar Selfoss og oddviti VG í Árborg við sveitarstjórnarkosningarnar 2010
Greinin birtist í Sunnlenska 25. mars 2010