21.04.2006
Samfylkingin og fylgishrunið

Til að skilja stöðu og stefnu Samfylkingarinnar verður að hafa í huga tilurð hennar. Samfylkingin var sett saman úr hópi fyrrverandi Alþýðuflokksfólks, Kvennlalistakvenna og Alþýðubandalagsfólks, undir því höfuð merki að búa til stóran flokk sem hefði burði til að keppa við íhaldið. Vissulega var hugmyndin áhugaverð. Hins vegar ef innviðirnir eru skoðaðir þá varð til með þessari samsuðu alveg ótrúlegur pólitískur hrærigrautur, sem hefur verið í stöðugum vandræðum með að taka pólitíska afstöðu. Þessi pólitíski vandræðagangur birtist aftur og aftur ef einhver stór mál koma upp. Dæmi: stóriðjumál, þar má Samfylkingin í hvorugan fótinn stíga því þá sundrast liðið; varnarmál, sömuleiðis og í umhverfismálum er engin heildstæð stefnumótun heldur sífelldur undansláttur og þannig er áfram um flest hin stærri mál. Þetta fylgir Samfylkingunni og er fólgið í tilurð hennar. Samfylkingin hér í Árborg er að þessu leiti engin undantekning. Hún hefur lent í erfiðleikum með að móta heildstæða stefnu í mörgum málum t.d. umhverfismálum og gera stefnumótun að leiðarljósi aðgerða. Þetta hefur leitt til þess að heildarsýn til framtíðar skortir og þar með leiðarljós til að leiða viðfangsefni til lykta á farsælan og framsýnan hátt. Í stað þess að vinna með heildstæða stefnu að leiðarljósi er gripið til þess að taka fyrir einstök mál eða málflokka og vinna að úrbótum. Dæmi um skort á stefnumótun er t.d. heildstæð umhverfisstefna sveitarfélagsins, sem væri um leið leiðarljós fjölmargra annarra mikilvægra þátta eins og t.d. atvinnustefnu, skipulagsmála, menntunarmála o.fl. Þegar skortur er á heildstæðri stefnumótun verður ákvarðanatekt oft seinvirk, stefnulaus og handahófskennd t.d. er vandræðagangurinn með Miðjuna, lausn skipulags- og skólamála við ströndina, afstaðan til brúar yfir Ölfusá lýsandi dæmi. Mér sýnist að í þessu séu vandamál Samfylkingarinnar einkum fólgin, því miður, því viljinn til góðra verka er sýnilegur, um það vitnar t.d. hvernig hún hefur staðið fyrir mörgu góðu í fjölskyldu- og velferðarmálum. Vinstri Græn koma með allt öðrum hætti að málum þar sem leiðarljósið er umhverfis- og menntastefnan, en af þeim leiða margvíslegar áherslur t.d.: * atvinnumál hvernig atvinnurekstur viljum við sjá
* mennta-og fræðslumál, stefna í háskólamálum og símenntun
* skipulagsmál, miðbær á Selfossi með torgi og mannlífi, miðjubyggð á ströndinni með skóla og samkeppni um frekari uppbyggingu á Eyrarbakka- og Stokkseyri
* ferlimál, hvernig aðgengi sé um bæinn og allskyns frágangi ferlimannvirkja
* samgöngumál, almenningssamgöngur og minnkun á einkabílaumferð sem er nauðsynleg aðgerð við ört hækkandi orkuverði
* fjölskyldumál, æskulýðs og tómstundamál
* o.fl. o.fl.
Fylgishrun Samfylkingarinnar er eðlileg afleiðing af því hvernig hún er saman sett, og vanmætti hennar til heildarstefnumótunnar til þróunar samfélagsins. Fólk batt vonir við að hún væri það afl sem dygði til að leiða samfélagið áfram til framtíðar, en þær vonir hafa brugðist og íhaldið farið að banka óþyrmilega á dyrnar. Vinstri hreyfingin grænt framboð býður fram heildstæða stefnumótun og framtíðarsýn. Við berum ekki fram fagurgala né gylliboð, heldur leggjum fram raunhæfar hugmyndir með hvaða hætti við teljum að unnt sé að ná því markmiði að Sveitarfélagið Árborg verði eftirsótt fjölskylduvinsamlegt samfélag, þar sem tekið er mark á öllum þegnum samfélagsins frá vöggu til grafar og félagslegir hagsmunir hafðir að leiðarljósi. Við viljum koma til liðs við uppbyggingu samfélagsins og aðstoða við heildstæða stefnumótun þess til næstu áratuga. Vilji menn sjá trausta stefnumótun og styrk handtök við stjórnvölinn veitir fólk Vinstri grænum brautargengi til áhrifa á kjördag.

Jón Hjartarson
skipar 1. sæti á lista VG í Árborg við komandi sveitarstjórnarkosningar