Það er gott að íslenskt réttarfar nái nú til þeirra útrásarvíkinga sem mesta sök eiga á efnahagshruninu. En bakvið hrunið og ófarir í íslensku efnahagslífi er líka önnur orsök sem við verðum að vinna á. Það er sá hugsunarháttur sem hér leiddi okkur áfram í gengdarlausri eyðslu, skuldasöfnun og veruleikafyrringu.
Ísland átti að verða ríkasta land í heimi stór hluti þjóðarinnar trúði því að það væri æskilegt og eftirsóknarvert markmið. Fyrir það markmið mátti fórna ýmsu og þá fyrst af öllu bæði hófsemi, umburðarlyndi og skynsemi.
Þessi þankagangur náði svo sannarlega inn í rekstur ríkis og sveitarfélaga. Hvarvetna um landið standa uppi minnisvarðar um þennan tíma. Þó svo að tónlistarhöllin á hafnarbakkanum í Reykjavík sé það sem auðveldast er að benda á eru dæmin miklu fleiri. Meira að segja hér í okkar Flóa var ráðist í skólabyggingar bæði á Stokkseyri og Selfossi þar sem ekkert var til sparað. Meira að segja skólabörnin á Íslandi eru látin fá tugþúsunda skrifstofustóla í stofurnar. Og þetta hófleysi átti dæmalaust vel við okkur.
Enda erum við þjóð sem hefur í einhverjum misskilningi haft orðtækið að ekkert skuli til sparað sem dæmi um höfðingsskap. En staðreyndin er sú að þegar unnið er útfrá mottóinu um að ekkert skuli til sparað ber það oftast vott um óhemjugang frekar en höfðingsskap. Óhemjugangur og neyslufrekja ríkis og sveitarfélaga átti svo greiða leið inn í líf almennings og þá var ekki endilega spurt um nauðsyn eða fjárráð.
Sá sem þetta skrifar er ekki mikill Evrópusinni þegar kemur að umræðunni um aðild að ESB. En við megum aftur á móti margt af Evrópumönnum læra sem kunna sumir þá dyggð að veita sér og spara um leið. Vita sem er að hófsemd er dyggð sem leiðir af sér vellíðan. Neyslufrekjan leiðir ekkert af sér nema enn frekari óhemjugang.
Við endurreisn hagkerfisins sem verður verkefni næstu ára þá þurfum við einmitt að draga að húni gömul og góð gildi og rækta með okkur ný í sama anda. Þessi endurreisn verður sameiginlegt verkefni okkar og í reynd miklu stærra en það verkefni að elta uppi fjárglæframenn fortíðar.
Bjarni Harðarson, atvinnurekandi
skipar 2. sætið á lista VG í Árborg.
Greinin birtist í Sunnlenska 20.maí 2010