Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
20.05.2010
Samfélag fyrir alla á ábyrgð okkar allra!

Í kosningunum sem fram fara þann 29. maí nk. munum við kjósa um hugmyndafræði. Sú hugmyndafræði sem réði ríkjum hér á Íslandi síðustu áratugi varð þess valdandi að heilt lýðræði riðaði til falls. Sú hugmyndafræði sem þá réði ríkjum er ekki sú hugmyndafræði sem við í Vg viljum sjá hér í Árborg. Í yfirstandandi efnahagskreppu hefur þörf fyrir fjárhagsaðstoð til einstaklinga aukist sem og önnur velferðarþjónusta.

Mikill vandi sem steðjar að mörgum heimilum og þar gegna sveitarfélögin stóru hlutverki ekki síður en ríkisvaldið. Sveitarfélögin hafa ríkar skyldur við þau heimili og þá einstaklinga sem verst hafa orðið úti í efnahagshruninu og það ber að leita allra leiða til að tryggja framfærslu, friðhelgi heimila, hag barnafólks og reisn þeirra sem leita þurfa aðstoðar. Í þessum efnum er fjárhagsaðstoð við þá sem minnst mega sín eitt af grunnatriðum velferðarþjónustunnar. Vg mun leggja áherslu á að þar sé hvergi slakað á.

Undanfarin tvö ár hefur fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins Árborgar hækkað verulega. Árið 2008 voru 75 einstaklingar sem þáðu aðstoð og fjárhagsaðstoðin nam 13.880.498 kr. árið 2009 voru það 133 einstaklingar og nam fjárhagsaðstoðin þá 29.187.651 kr. Það sem af er þessu ári þ.e. janúar til apríl hafa 70 einstaklingar þegið aðstoð að upphæð alls 11.982.994 kr.

Félagslegar íbúðir sveitarfélagsins gegna lykilhlutverki í velferðarþjónustu þess og því leggst Vg í Árborg gegn öllum hugmyndum um sölu þeirra. Á kjörtímabilinu samþykkti meirihluti bæjarstjórnar að taka upp sérstakar húsaleigubætur til handa þeim sem eru tekjulágir og eru á leigumarkaðinum. Núna í vor var síðan samþykkt að greiða sérstakar húsaleigubætur til þeirra sem tekjulægstir eru og búa í félagsbústöðum Árborgar þar sem fasteignamat hefur hækkað og leigan að sama skapi. Við í Vg leggjum áherslu á að við alla velferðaþjónustu sé horft til mismunandi þarfa þeirra sem henni er ætlað að þjóna. Íbúar sveitarfélagsins er ekki einsleitur hópur og þarf því að taka tillit til hvers og eins hvort sem um er að ræða aldraða, fatlaða, öryrkja, einstæða foreldra, atvinnulausa eða þá sem búa tímabundið við erfiðar aðstæður. Það sem einum hentar getur verið öðrum óhagstætt þó báðir séu undir sömu skilgreiningu í opinberum gögnum. Við yfirtöku málaflokka aldraðra og fatlaðra er mikilvægt að félagsþjónusta sveitarfélagsins hlusti eftir því sem þjónustuþegar og almennt starfsfólk á þessum vettvangi hefur fram að færa. Við erum mjög lánsöm að eiga gott starfsfólk í þessum málaflokki. Við í Vg viljum að fólk geti lifað góðu og innihaldsríku lífi með reisn frá vöggu til grafar og er þá enginn undanskilinn. Hugmyndafræði og stefna Vg miðast við þessa sýn á aðstæður fólks..

Atkvæði greidd Vg er ávísun á heilbrigt samfélag fyrir alla á ábyrgð okkar allra!

Sædís Ósk Harðardóttir
3. sæti framboðslista Vg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Árborg.

Greinin birtist í Dagskránni 20. maí 2010

Deila