Í aðalskipulagi 1995 og 2006 er gert ráð fyrir því að þjóðvegur 1 fari fyrir norðan Selfoss. Í báðum tilfellum kemur fram að bæjaryfirvöld Selfoss í fyrra tilfellinu og nú Árborgar telja að heppilegra sé að nota brúarstæði fyrir neðan Selfoss við Geitanes. Það er ljóst að brúarstæði fyrir ofan er valið vegna þeirrar kröfu Vegagerðarinnar að þjóðveg 1 megi ekki lengja í trássi við það sem sveitarstjórnirnar telja best fyrir byggðarlagið. Eftir að hafa nefnt kosti við að fá þjóðveginn í gegnum sveitarfélgið réttlætir núverandi sveitarstjórn að vísu þessa undanlátsemi og samninginn við Hraungerðishrepp og Vegagerðina með því að ekki sé gott að vegurinn kljúfi sveitarfélgið. Það er því ekki bara vilji VG að brúin verði fyrir neðan Selfoss, það hefur verið vilji bæði núverandi og fyrrverandi sveitartjarnarfulltrúa á Selfossi og í Árborg. Þetta hefur m.a. komið fram í þeim ummælum Guðna Ágústssonar að það sé Selfyssingum sjálfum að kenna að brúin sé ekki komin vegna þess að þeir hafi ekki verið einhuga um brúarstæðið. Eru Vinstri græn þá ein á villigötum, eða eru þau í góðum félagsskap fólks úr öllum flokkum en þau einu sem eru með áttavita og vita hvert skal halda?
Með því að vegurinn komi niður að Ölfusá vestan við Kögunarhól vinnst það m.a. að ekki þarf að aka inn í vindstrenginn sem er undir Ingólfsfjalli og veldur umferðarslysum árlega. Megin umferðinn í og úr ört vaxandi 7 til 20 þúsund manna sveitarfélagi fer stystu og öruggustu leið til og frá höfuðborgarsvæðinu. Framtíðarhverfi sveitarfélagsins og bæirnir niður á Eyrum munu liggja mun betur við samgönguæðinni. Tenging framtíðar frístundasvæðis Árborgar við stærstu nágranna sveitarfélögin, Hveragerði og Reykjavík verður mjög greið. Það er alveg ljóst að flugvöllur hvort sem hann verður þar sem hann er nú eða annarsstaðar í Árborg verður betur í þjóðbraut. Sú eigingjarna stefna flestra framboða í Reykjavík að flytja Reykjavíkurflugvöll mun gera Selfossflugvöll mjög mikilvægan sem varaflugvöll og samgönguflugvöll fyrir Vestamannaeyjar, Hornafjörð og jafnvel Egilsstaði ef hann liggur vel við samgöngum til Reykjavíkur.
Auðvitað mun nýtt aðalskipulag og deiliskipulag í framhaldi af því taka mið af legu brúarinnar og þannig verður framtíðar íbúðabyggð af öllum gerðum og ekki síður atvinnusvæði skipulögð. Það er mun meira svigrúm fyrir lóðir fyrir atvinnustarfsemi neðan við Selfoss heldur en upp að Ingólfsfjalli.
Það er næsta víst að það þarf að fara í endurbætur á Votmúlaveginum í framtíðinni, ekki síst til þess að hann beri þungaflutninga t.d. til Þorlákshafnar, þá væri mjög gott að hann kæmi inn á Suðurlandsveginn austan við Tún.
Gylfi Þorkelsson talar um veginn sem hraðbraut. Það er og verður vissulega talsverð umferð um Suðurlandsveg fyrir sunnan og austan Selfoss, en hún verður aldrei nema lítill hluti af þeirri umferð sem er um veginn í Ölfusinu og hámarkshraðinn verður aldrei nema 90 km á klst. Að þungaflutningarnir fari í gegnum Selfoss er okkar að ákveða. Þó að vegurinn verði eitthvað lengri munu flutningabílstjórarnir velja greiðari leiðina og það er engin ástæða til þess að gamla leiðin í gegnum Selfoss verði greið.
Stjórn Skógræktarfélags Selfoss skrifaði ágæta grein í Gluggann um Hellisskóg og lýsti eftir framtíðarsýn frambjóðenda á samstarfið við Skógræktarfélagið. Vinstri græn vilja standa vörð um Hellisskóg og varðveita þær minjar sem þar eru t.d. Hellisbrúna Við viljum styðja Skógræktarfélagið og metum að verðleikum það góða starf sem það hefur unnið til hagsbóta fyrir íbúa sveitarfélagsins. Við getum alls ekki skilið að gildi Hellisskógar muni ekki minnka ef þjóðvegur 1 fer um hann. Auðvitað mun vegagerð um þetta svæði skemma bæði útivistarsvæðið í Hellisskógi og framtíðarmöguleika golfvallarins. Þess vegna berjumst við gegn því að þjóðvegur 1 fari um Hellismýri. Vonandi berum við gæfu til þess að koma í veg fyrir meiri umhverfisslys fyrir utan Ölfusá en þegar eru orðin.
Stjórnmál, reglugerðir og grundvallaratriði geta verið skrýtin þegar þau blandast saman. Það má snúa á Vegagerðina með því að hafa þjóðveg 1 þar sem hann er núna, en leggja til að á vegaáætlun komi nýr vegur með brú fyrir neðan og sunnan Selfoss. Hann fengi þá sérstakt númer og nafn t.d. Árborgarvegur.
Þorsteinn Ólafsson,
skipar 14. sæti á lista VG í Árborg við komandi sveitarstjórnarkosningar