Öll börn eiga að búa við bestu mögulegu uppvaxtarskylirði. Nú eru tólf ár liðin síðan leikskólastigið var samþykkt sem fyrsta skólastigið. Árið 1999 var sett sérstök aðalnámskrá um leikskólastigið, eðlilegt framhald er því að gera leikskólann gjaldfrjálsann. Öll börn eiga að njóta sama aðgengis að menntakerfi nu.
GJALDFRJÁLS LEIKSKÓLI
Því er eðlilegt að leikskólar séu reknir af opinberum aðilum og gjaldtökur í leik og grunnskólum lúti sömu lögmálum. Skólagjöld leikskólanna í dag eru allt of há og fyrir marg-ar fjölskyldur er hún munaður! Leikskólinn er í dag dýrasta skólastigið og í ljósi þess hversu mikilvægt þetta starf er í undirbúningi barnanna fyirr grunnskólanámið er það skammarlegt! Það gagnast öllum að fella niður leikskólagjaldið, það mun vinda upp á sig og hvetja ungt fólk til að fl ytja á Árborgarsvæðið.
Vinstri græn kom fyrst fl okka með þessa kröfu og nú fylgja hinir eftir enda ekkert nema gott við það að aðhyllast góðar hugmyndir!
GJALDFRJÁLS GRUNNSKÓLI
Skólinn er hluti af lífi allra barna – ekki bara undirbúningur fyrir lífi ð. Hann er vinnustaður barnanna okkar! Skólakerfi fyrir alla óháð efnahag er lykilatriði í menntastefnu Vinstri grænna. Einkaframkvæmdar áhugi stjórnvalda og árátta sumra fl okka í að draga úr opinberum rekstri hefur valdið því að hluti af því opinbera fé sem ætlað er til skólastarfs leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla fer til að styrkja einkaskóla sem síðan afl a viðbótarfjár með skólagjöldum og /eða styrkjum frá fyrirtækjum og stofnunum. Þessi þróun ógnar þeirri jafnréttishugsun sem Vinstri græn í Árborg stendur fyrir, við viljum reka skólakerfi sem býður upp á jafngild tækifæri fyrir öll börn. Grunnskólinn þarf að vera gjaldfrjáls með öllu. Þetta á við um skólamáltíðir, stílabækur, skriffæri og frístundaheimili. Menningarleg stéttarskipting er óviðunandi og efnahagsleg staða fólks á ekki að stjórna aðgengi barnanna að grunnskólanámi.
ALMENNILEGT SKÓLAHÚSNÆÐI
Búseta fólks innan sveitarfélagsins á ekki að skipta höfuð máli um hvernig menntun börnin okkar fá. Við fullorðna fólkið krefjumst þess á okkar vinnustað að rétt sé staðið að öllum aðbúnaði og vísum hiklaust í stéttarfélagsákvæði ef okkur er misboðið. Við þurfum að standa vörð um hagsmuni barnanna okkar! Nú er komið að byggingu skóla fyrir nemendur Eyrarbakka og Stokkseyrar, við höfum ekki efni á því að láta það bíða lengur. Við getum ekki boðið börnunum okkar upp á það lengur.
Vinstri græn í Árborg hafa tekið afstöðu í þessu máli og hafna þeim hugmyndum um
að hent verði upp einhverjum nýbyggingum við gamlar óhentugar skólabyggingar eins og
Sjálfstæðisfl okkurinn stóð fyrir hér á Selfossi um árið, heldur viljum við varanlega góða
lausn á húsnæðismálum BES. Þess vegna tökum við afstöðu með íbúum svæðisins og
viljum byggja sameiginlegan, faglega góðan, skóla á milli þorpanna.
AÐGENGI FATLAÐRA
Við teljum það vera skyldu og ábyrgð sveitarfélagsins að búa fötluðum jafngóðar aðstæður og öðrum. Einstaklingar með fötlun eiga rétt á jafnrétti til daglegs lífs, náms og starfs í heimabyggð sinni og eiga að njóta sambærilegra lífskjara og aðrir þegnar samfélagsins. Aðgengi er því mikilvægt. Það þarf að tryggja aðgengi fatlaðra að samfélaginu. Þetta varðar ferðamöguleika eins og góða göngustíga og aðkomu að þjónustustofnunum sveitarfélagsins sem að sjálfsögðu nýtist öðrum þegnum þess. Og einnig réttinn til þátttöku, að hlustað sé á mann, að fá að taka þátt í félagsstarfi og öðru sem er að gerast í sveitarfélaginu.
BÆTUM SUNDLAUGINA
Mál sundlaugar Selfoss hefur verið í brennidepli undanfarið. Ljóst er að aðstaða í búningsklefum sundlaugarinnar er afar slæm og brýnt er að leysa þetta mál. Við Vinstri græn í Árborg viljum byggja upp viðunandi búningsaðstöðu og teljum þetta vera brýnt verkefni. Aðgengi fyrir fatlaða í sundlaug Selfoss er til háborinnar skammar, þrátt fyrir að það hafi oft verið bent á þetta ástand og beðið um úrlausnir. Sundlaug Selfoss á að vera aðgengileg fyrir alla íbúa sveitarfélagsins.
HAGUR ALDRAÐRA Í ÁRBORG
Flestir aldraðir þurfa á einhverjum tímamótum á aðstoð og umönnun að halda. Við teljum brýnt að stórbæta þjónustu við aldraða m.a. með samþættri heimaþjónustu og heimahjúkrun sem verði á einni hendi. Einnig er mikilvægt að eldra fólk eigi val um að búa heima lengur.
Aldraðir eru ekki einsleitur hópur. Aðgerðir eins og aukinn afsláttur aldraðs tekjulágs fólks af fasteignagjöldum kemur þar inn. Við viljum að Árborg endurskoði reglur sínar varðandi afslátt á fasteignagjöldum tekjulágra aldraðra. Núverandi tekjuviðmið Árborgar, þegar afsláttur fellur niður, eru lægri en í nágrannasveitarfélögunum. Við það er ekki unandi.
VINSTRI GRÆN – HREINAR LÍNUR
Alma Lísa Jóhannsdóttir,
skipar 4. sæti á lista VG í Árborg við komandi sveitarstjórnarkosningar