Vinstri græn í Árborg leggja ríka áherslu á skipulagsmál í sinni málefnaskrá. Hafa ber í huga að Vinstrihreyfingin grænt framboð er umhverfissinnaður flokkur og að skipulagsmál eru umhverfismál. Við viljum sjá vandaðri vinnubrögð í þessum málaflokki og að horft sé til framtíðar. Árborg er vaxandi sveitarfélag og við eigum að gera sveitarfélagið eftirsóknarvert til búsetu og fyrir atvinnustarfsemi í samræmi við umhverfisstefnu.
Nýr búsetuvalkostur við ströndina
Vinstri græn hafa lagt fram tillögur um nýtt byggingarsvæði á ströndinni. Við viljum að skipulagt verði nýtt byggingarsvæði norðaustan Gaulverjabæjarvegar (Stokkseyrarvegar) meðfram Eyrarbakkavegi í átt að Selfossi. Þetta svæði ásamt Eyrarbakka og Stokkseyri og svæðið þar á milli verður skipulagt sem ein heild. Gott búsetusvæði í göngufæri við stórkostlega náttúru þar sem fjaran skipar stóran sess. Þetta byggingarsvæði mun einnig tengjast nýju Búgarðabyggðinni sem hlotið hefur nafnið Tjarnarbyggð. Friðuð svæði ber að varðveita og umgangast með varúð. T.d. er stór hluti landsins á milli Eyrarbakka og Stokkseyrar sunnan Gaulverjabæjarvegar friðaður. Þar viljum við ekki byggja heldur skipuleggja útivistarsvæði. Jafnframt þessu þarf að tryggja gott lóðarframboð á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvíkurhreppur eru eitt sveitarfélag sem verður að skipuleggja heildstætt.
Nýtt brúarstæði suðvestan við Selfoss
Vinstri græn vilja nýja brú suðvestan við byggðina á Selfossi. Þannig færi þjóðvegur 1, Suðurlandsvegur suður fyrir Selfoss og myndi efla sveitarfélagið og sameina byggðakjarnana enn frekar. Það hefur marg oft sýnt sig að byggðir dafna best í nágrenni við þjóðveg 1.
Samkvæmt nýju aðalskipulagi er gert ráð fyrir nýju brúarstæði austan við núverandi brú. Samkvæmt því á að leggja þjóðveg 1 í gegnum Hellisskóg og yfir Golfvöll Selfoss. Þarna á að fórna mjög fallegu landssvæði undir þjóðveginn sem ekki er hægt að samþykkja. Þeir sem eru í bæjarstjórn hverju sinni eiga að reyna að hafa áhrif á Vegagerðina hvar nýtt brúarstæði er sett niður. Bæjarstjórn á að hafa hag sveitarfélagsins í huga. Það hefur núverandi bæjarstjórn ekki gert.
Miðbærinn og klaufaleg vinnubrögð meirihlutans
Fyrir nokkrum dögum eignaðist Sveitarfélagið Árborg land Miðjunnar. Með því voru hugmyndir dönsku arkitektastofunnar 3XNielsen um turnana tvo lagðar til hliðar. Hugmyndir sem náðu til of lítils hluta miðbæjarsvæðisins. Hugmyndir sem áttu alls ekki hljómgrunn meðal íbúa Árborgar. Þar með voru einnig fyrri hugmyndir meirihluta Framsóknarflokks og Samfylkingar um uppbyggingu svæðisins lagðar til hliðar. Vinstri græn eru mjög ánægð með kúvendingu meirihlutans í þessu máli. Það er með ólíkindum hvað meirihlutinn hefur verið sofandi allt þetta kjörtímabil og er núna fyrst að vakna rétt fyrir kosningar. Að sjálfsögðu eiga bæjaryfirvöld að eiga frumkvæði að því að láta skipuleggja hér miðbæ. Það er fagnaðarefni að meirihlutinn er búinn að átta sig á því þó seint sé. Ef þeir hefðu áttað sig fyrr hefðu Miðjumenn væntanlega ekki látið vinna sínar hugmyndir svona mikið með ærnum tilkostnaði. Þessi klaufalegu og óábyrgu vinnubrögð meirihlutans hljóta að auka kostnað sveitarfélagsins. Það hefði örugglega verið ódýrara að kaupa lóðirnar á miðbæjarsvæðinu fyrr og gera þar með hagstæðari samning fyrir íbúa Árborgar.
Skipuleggjum einstakan miðbæ
Vinstri græn hafa lagt ríka áherslu á að skipuleggja þurfi góðan miðbæ á Selfossi. Miðbæ eins og þekkist hér á landi og víða úti í hinum stóra heimi. Miðbæ með áherslu á verslun, þjónustu, menningarstarfsemi og veitingahús. Miðbæjartorg þarf að vera miðpunktur svæðisins þar sem fólk getur safnast saman. Upplagt fyrir útileikhús, tónleika, útimarkaði o.fl. Gæta þarf að því að ofhlaða ekki miðbæinn með byggingum.
Vinstri græn vilja að efnt verði til hugmyndasamkeppni um miðbæjarskipulag. Nú er einstakt tækifæri fyrir arkitekta að hanna hér miðbæ fyrir ungt og öflugt sveitarfélag. Slík hugmyndasamkeppni verður örugglega eftirsóknarverð og verður ákveðin lyftistöng fyrir sveitarfélagið.
Það eru spennandi tímar framundan í skipulagsmálum Árborgar.
Vinstri græn – hreinar línur.
Hilmar Björgvinsson,
skipar 2. sæti á lista VG í Árborg við komandi sveitarstjórnarkosningar