Það fer margt í gegnum huga mér eftir seinasta fund hjá íþrótta- og tómstundarnefnd 5. sept. sl. Þar lögðum við í meirihlutanum fram upplýsingar um hjólabrettaaðstöðu í Árborg. Þessar upplýsingar hlutu mikla gagnrýni fulltrúa D-lista, sem töluðu um að þetta væri of mikill kostnaður fyrir íþrótt sem ekki væri meira stunduð og við ströndina væru svo fá börn að það væri ekki forsvarslegt að eyða peningum til að koma upp aðstöðu þar. Fjöldi þeirra sem stunda þessa íþrótt er á reiki, en á það ber að líta að það eru ekki bara þeir sem eru á brettunum sem njóta góðs af bættri aðstöðu, heldur eru margir sem koma að horfa á.
Hér við ströndina eru málum þannig háttað að þar er fátækleg aðstaða til tómstundaiðkanna fyrir börn og unglinga, ungmannafélag Stokkseyrir á þó heiður skilið að halda úti fótboltaæfingum fyrir ákveðna aldurshópa auk þess sem fimleikar voru að hefjast núna í haust og íþróttaskóli fyrir yngri börnin.
Í öllum sveitarfélögum er alltaf ákveðinn hópur barna og unglinga sem ekki sækja í þessar “hefðbundnu” íþróttir og því þarf að finna þeim annað við að vera við. Og þá komum við að þeim vanda er blasir við hér við ströndina. Hér er fábreytt tómstundaaðstaða fyrir þennan hóp. Til mín komu í vor nokkrir galvaskir drengir og spurðu mig hvort ég væri ekki í “svona nefnd sem réði hvað væir gert fyrir krakka” ég sagði þeim að ÍTÁ myndi einmitt reyna að koma til móts við alla hópa og þá spurðu þeir hvort ekki væri hægt að fá brettasvæði hér á Eyrarbakka. Mér fannst þetta gott hjá þessum piltum og á svipuðum tíma fær Andrés Sigurvinsson verkefnisstjóri íþróttamála heimsókn frá fríðum hópi ungmenna þar sem honum var afhent yndislegt bréf þar sem óskað er eftir lagfæringum á brettasvæðinu á Selfossi. Á Stokkseyri eru málum háttað þannig að fyrir utan íþróttahúsið á bílastæðinu hafa verið rampar til að nota en það gefur augaleið að það svæði er varasamt vegna umferðar. Farið var í málið og kannaður kostnaður við uppbyggingu svæða og kannaður kostnaður við að lagfæra og betrum bæta svæðið á Selfossi. Á Eyrarbakka er svæði þar sem búið er að jarðvegsskipta og þarf því eingöngu að setja viðeigandi efni á og fá rampa, á Stokkseyri þarf að jarðvegsskipta og setja malbik og rampana og á Selfossi þarf að lagfæra það sem fyrir er. Vissulega kostar þetta peninga og vissulega er margt á þarfalistanum hér í Árborg en svo sannarlega þarf að finna eitthvað fyrir ungmenni á Eyrarbakka og Stokkseyri. Hér við ströndina er ekki félagsmiðstöð og þarf því að keyra unglinga héðan og á Selfoss, það er eina lausnin í bili.. Til að keyra þau á milli þarf rútu og það hefur verið gert án eftir gangsmuna , Fulltrúar minnihlutans töldu kostnaðinn við að aka krökkunum frá Eyrarbakka og Stokkseyri í félagsstarf á Selfossi alltof mikinn nær væri að nota þessa fjármuni til að lagfæra eitthvað af því sem vantaði á Selfossi. Vissulega vantar ýmislegt og margt þarf að gera, en það er óþarfi að draga alltaf lappirnar ef um er að ræða að gera eitthvað fyrir ungmennin á Eyrarbakka og Stokkseyri. Það er verið að vinna að stefnumótun í íþróttamálum og uppbyggingu íþróttamannvirkja. Þá mun koma betri aðstaða í Árborg til íþróttaiðkunnar, sem nýtast mun öllum sem stunda íþróttir á einhverju sviði. Mikill metnaður er lagður í þá vinnu hjá þeim hóp er það vinnur. Þar komum við inná 2. lið þessa fundar þar sem ÍTÁ samþykkti að endurskoða íþrótta- og tómstundastefnu Árborgar og að gengið yrði til samninga við Rækt ehf, fyrirtæki sem sérhæfir sig í slíkri vinnu. Í þessu felst að endurskoðað yrði núverandi íþrótta- og tómstundastefnu, þarfagreining varðandi aðstöðu og mannvirki, endurskoðað verklag við úthlutun styrkja, almenn úttekt á samskiptum við íþrótta- og tómstundafélög og íbúa sveitarfélagsins í málaflokkum er heyra undir nefndina, í þeim tilgangi að auka skilvirkni, bæta þjónustu og nýta sem allra best það fé sem varið er til íþrótta- og tómstundamála. Þessi vinna myndi auk þess nýtast við vinnu að forvarnarmálum í sveitarfélaginu sem er í gangi. Þessu voru D- listamenn á móti. Þannig að þessi tillaga var samþykkt með 3 atkvæðum gegn 2. Ég legg mikla áherslu á sem íbúi þessa sveitarfélags að hér ríki jafnræði milli svæða og að börn og ungmenni þurfi ekki að gjalda fyrir það að foreldrara þeirra búi á Eyrarbakka eða Stokkseyri. Það vill meirihluti ÍTÁ leggja áherslu á. Umbætur í íþrótta- og tómstundamálum barna- og unglinga á Eyrarbakka og Stokkseyri verða greinilega ekki gerðar með stuðningi fulltrúa Dlistans í íþrótta- og tómstundanefnd, því miður.
Sædís Ósk Harðardóttir
Formaður VG Árborg og varaformaður íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar.