Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
12.05.2010
Og hér í Árborg er auðvitað allt í steik?

Bærinn er á hausnum, á Selfossi er ekkert við að vera, hér eru hvorki hjólastígar né reiðleiðir, vegurinn hingað er lífshættulegur og einn umferðartappi, verktakafyrirtækin öll á hausnum og allt í kringum okkur hálfbyggð draugahverfi. Atvinnuleysið er meira en nokkru sinni áður og á ströndinni berjast ferðaþjónustufyrirtækin í bökkum. Er ég að gleyma einhverju, jú, sundlaugin er lokuð á helgidögum og það er verið að ala múkkann í fuglafriðlandinu.

Einhvernvegin þannig hljómar söngur sem við heyrum alltof oft í okkar ágæta sveitarfélagi. Og víst er það svo að verkefni næstu ára eru ærin. En það er mikill bölmóður þegar talað er á þá lund að hér sé allt í steik. Staðreyndir tala allt öðru máli. Staða bæjarfélagsins er viðunandi miðað við hamfarir liðinna frjálshyggjuára og öfundsverð í samanburði við mörg sambærileg sveitarfélög. Við erum einfaldlega ekki á lista Eftirlitsnefndar um fjárhag sveitarfélaga og ekkert sem bendir til að við lendum þar.

Það er óvíða eins gott að vera fyrir bæði hestamenn og hjólhestamenn. Vissulega þarf enn úrbætur í þessum málum, einkanlega hvað varðar leiðir fyrir hestamenn suður fyrir bæinn og þar grillir sem betur fer í lausnir. Það eru óvíða ef nokkursstaðar á landsbyggðinni eins góðir hjólreiðastígar en vitaskuld þarf að efna afar gamalt og dýrmætt loforð fyrri framboða um hjólaleiðir milli kauptúnanna í sveitarfélaginu.

Vegbætur eru sömuleiðis í farvatninu. Staðreyndin er samt sú að þegar talað er um umferðarhnúta á Ölfusárbrú og slysahættu á Hellisheiðarvegi hættir okkur til að grípa í ýkjustílinn. Miðað við þær kröfur sem gerðar eru í nágrannalöndum okkar, hvort sem er í Evrópu eða Ameríku þá teljast vegirnir hér engan veginn alvarlega ofsetnir og umferðarhnútar í miðbænum okkar og á brúnni eru örfáir á árinu. Með nýrri Ölfusárbrú léttum við mikið á umferðinni og sömuleiðis eru vegbætur í Ölfusi og Hellisheiði á teikniborðinu.

Á Selfossi er ekkert við að vera, er viðkvæði margra. Þetta er einfaldlega rangt enda eru örfáir bæir á landsbyggðinni sem búa að jafn mikilli umferð og viðskiptum ferðamanna, jafnt innlendra sem erlendra. Hingað sækja menn margháttaða þjónustu sem er enda hlutverk bæjarins og allt í kring eru svo vinsælir áningarstaðir. Það er Selfoss sem sem nýtur góðs af þeirri umferð sem náttúruperlur Suðurlands draga til sín. Vitaskuld er brýnt að byggja einnig upp afþreyingu í bænum við ána. Undirritaður hefur sjálfur reynslu af slíkum rekstri þar sem er Sunnlenska bókakaffið og ég tel að í þessum efnum eigi einkaframtakið í bænum mikið óunnið. Þar getur hvatning bæjarstjórnar skipt miklu.

Það er dæmigert fyrir málefnafátækt minnihluta bæjarstjórnar að gera lokun Sundhallar Selfoss á opinberum helgidögum að kosningamáli. Síðast þegar opið var sumardaginn fyrsta komu um 40 ferðalangar á staðinn auk fastagesta! Óhróður manna um fuglafriðlandið er langt utan þess raunveruleika sem við aðdáendur Flóagaflshverfisins þekkjum.

Atvinnuleysi, gjaldþrot verktaka og hin hálfköruðu hverfi umhverfis þéttbýlið eru alvarleg verkefni í kjölfar frjálshyggjutímans og þau kalla á viðbrögð. En bölmóðurinn mun engu skila. Til þess að ná árangri þurfum að við að hafa jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi. Þannig getum við lyft grettistaki og gert gott sveitarfélag ennþá betra. Gerum það.

Bjarni Harðarson, atvinnurekandi
skipar 2. sætið á lista VG í Árborg.

Greinin birtist í Sunnlenska 12. maí 2010

Deila