Nú ættum við gamlingjarnir á Íslandi að geta glaðst og horft björtum augum til framtíðar. Sjaldan hafa gylliboðin, sem eiga að freista okkar til að kjósa ríkisstjórnarflokkana í komandi sveitarstjórnarkosningum verið eins hástemd og nú. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn lofa gulli og grænum skógum ef við bara kjósum þá. Þá á hjúkrunarheimila vandinn að leysast og allar áhyggjur okkar vegna spurningarinnar um hve lengi við getum búið heima hjá okkur ef við getum ekki lengur bjargað okkur sjálf eiga sömuleiðis að vera horfnar. Samfylkingin vill ekki vera síðri en stjórnarflokkarnir í loforðaflaumnum og segir okkur að öll vandamál aldraðra muni leysast ef málefni þeirra komist bara undir stjórn sveitarfélaganna! Kosningaloforð þessara flokka í málefnum aldraðra í komandi sveitarstjórnarkosningum í Árborg eru sama marki brennd. Þar er loforðalistinn langur og gylliboðin mörg.
Við, aldraðir, vitum að hér er aðeins um skrum og gylliboð að ræða. Það hefur stjórn þessara flokka á málefnum aldraðra síðustu árin kennt okkur. Ég get ekki ímyndað mér annað en að þetta ágæta fólk viti að það sem stendur þessum málaflokki fyrir þrifum er fyrst og síðast fjárskortur. Forgangsröðunin hefur verið röng. Í stað þess að tryggja gömlu fólki mannsæmandi kjör og aðbúnað þegar það getur ekki lengur séð um sig sjálft vegna þverrandi krafta eða veikinda, hefur umönnunarþörfinni ekki verið sinnt en skattheimta á þennan þjóðfélagshóp verið aukin og stór hluti hans er hnepptur í fátæktargildru.
Að mínu mati eigum við ekki að nálgast öldrunarmál og úrlausn þeirra sem vandamál. Gamalt fólk á sama rétt til mannsæmandi lífs og aðrir samfélagshópar og aldraðir eiga að gegna mikilsverðu hlutverki í samfélagi okkar. Reynsla þeirra og þekking t.d. á umhverfi, staðháttum, verklagi og sögu genginna og eigin kynslóðar er ómetanlegur auður, samfélagslegur hlekkur, sem á að meta og nýta.
Að því kemur hjá mörgum öldruðum að þeir þurfa á aðstoð og umönnun að halda eins og hver annar samfélagshópur. Réttur þeirra til samfélagsþjónustu eftir þörfum er óumdeilanlegur og úrlausn þess verkefnis á ekki að vefjast fyrir okkur. Gamalt fólk er ekki einsleitur hópur og þjónustuþarfir þeirra eru mismunandi. Í þessu sambandi er mikilsvert að undirstrika að við ákvarðanir og úrlausn í velferðarmálum aldraðra verður að taka mið af kynbundnum mun þeirra. Tekjur, þarfir, reynsla og viðhorf þessa hóps eru ekki hin sömu fyrir konur og karla engu síður en hjá öðrum samfélagshópum.
Ofangreind viðhorf liggja til grundvallar stefnumótunar Vinstri grænna í Árborg í málefnum aldraðra og m.a. þess vegna styð ég flokkinn í komandi kosningum og féllst á að skipa 6. sæti á lista hans í komandi sveitarstjórnarkosningum Hér fara á eftir helstu áherslur Vinstri grænna í málefnum aldraðra í Árborg.
*Við viljum að sveitarfélagið leggi allt kapp á að samræma og koma undir eina stjórn heimaþjónustu og heimahjúkrun fyrir aldraða. Við viljum sem sé að komist verði að samkomulagi við ríkisvaldið um að sveitarfélagið taki við stjórn heimahjúkrunar að því tilskyldu að nægir fjármunir fylgi þessu verkefni til sveitarfélagsins. Stjórnkerfiságallar eiga ekki að hindra lipra og góða velferðarþjónustu, sem mætir þörfum hvers og eins. Við viljum að sem flestir aldraðir í Árborg geti búið sem lengst heima hjá sér og þessi þjónusta er mikilvægur hlekkur í því samhengi.
*Við viljum að sveitarfélagið geri allt sem í þess valdi stendur til að tryggja að byggð verði 3. hæð við væntanlegt hjúkrunarheimili við Heilsugæsluna. Jafnframt verður sveitarfélagið að beita öllum sínum þunga í þá veru að í þessu væntanlega hjúkrunarheimili verði tryggt að gamalt fólk geti búið í sérbýli og rekstrarform þess verði heimilislegt.
*Við viljum að dagdeildarþjónusta fyrir aldraða verði efld og tímalengd hennar fyrir einstaklinga verði í samræmi við þarfir hvers og eins.
*Við viljum að sveitarfélagið meti í bættum launum starfsfólks mikilvægi umönnunarstarfa í þágu aldraðra.
*Við viljum að Árborg endurskoði reglur sínar varðandi afslátt á fasteignagjöldum tekjulágra aldraðra. Nú eru tekjuviðmið Árborgar, þegar afsláttur fellur niður, lægri en í nágrannasveitarfélögunum. Þar munar nokkur hundruðum þ+usunda. Við það er ekki unandi.
Að lokum, við viljum tryggja að allir aldraðir geti lifað með reisn, það eru mannréttindi.
Guðrún Jónsdóttir,
skipar 6. sæti á lista VG í Árborg við komandi sveitarstjórnarkosningar