Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
10.06.2010
Þakkir frá VG að loknum kosningum

Kosningar til hreppsnefnda eru nú afstaðnar og fyrir utan stórsigur Besta flokksins í Reykjavík er fátt sem kemur á óvart. Ríkisstjórnarflokkarnir fara heldur hallt út úr þessum leik og er að vonum á krepputímum. Sjálfstæðisflokkur sækir nú fast að fyrri stöðu sinni.

Hér í Árborg féll sitjandi meirihluti og nú tekur við hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks. Er full ástæða til að óska þeim flokki velfarnaðar í vandasömu starfi. Kosningasigur Sjálfstæðismanna var að langstærstum hluta á kostnað Samfylkingar sem tapaði nærri fjórðungi þeirra atkvæða sem flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Framsókn tapaði lítillega af sínu fylgi sem var nóg til að missa annan bæjarfulltrúa sinn og fella þar með meirihlutann.

Eini meirihlutaflokkurinn frá síðasta kjörtímabili sem vann á í þessum kosningum var VG en í fyrsta sinni fær framboðið nú tveggja stafa tölu þegar atkvæði eru mæld í prósentum. VG náði í fyrsta sinni manni inn í bæjarstjórn Árborgar árið 2006 og hélt því sæti örugglega í kosningunum nú. Með þann árangur göngum við bjartsýn til þeirra verka sem bíða okkar í minnihluta. Þar leggjum við sem fyrr áherslu á að byggja upp heilbrigt samband við aðra bæjarstjórnarflokka og að slaka hvergi á í þeim stefnumálum sem flokkurinn hefur sett sér.

Að því sögðu viljum við þakka kjósendum stuðninginn, keppinautum kosningabaráttuna og bæjarbúum öllum þátttökuna í kosningunum.

Þórdís Eygló Sigurðardóttir bæjarfulltrúi VG

Bjarni Harðarson varabæjarfulltrúi VG

Jón Hjartarson fráfarandi bæjarfulltrúi VG

Greinin birtist í Dagskránni 10. juní 2010

Deila