Vinstri hreyfingin grænt framboð í Árborg er langt komin með málefnavinnu sína fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Þar sem listinn hefur á að skipa fólki með víðtæka reynslu á mörgum sviðum hafa komið fram ýmsar ferskar hugmyndir varðandi uppbyggingu sveitarfélagsins. Þess vegna verða Vinstri græn að komast til áhrifa í vor með vönduð og ábyrg vinnubrögð að leiðarljósi.
Ný og framsækin hugmynd í skipulagsmálum
Vinstri græn hafa lagt fram nýja hugmynd varðandi skipulagsmál á ströndinni. Við viljum að skipulagt verði nýtt byggingarsvæði norðaustan Stokkseyrar meðfram Eyrarbakkarvegi í átt að Selfossi fyrir 1000-1500 íbúa. Með þessari hugmynd erum við að horfa til framtíðar og bjóða upp á nýjan eftirsóknarverðan valkost þar sem gott verður að búa. Þessi byggð mun efla og styðja byggðina á Eyrarbakka og Stokkseyri og gera svæðið heildstæðara. Upplýstir göngu- og hjólastígar verði á milli staðanna, auk reiðstíga. Meðfram ströndinni sunnan Stokkseyrarvegar er frábært útívistarsvæði frá náttúrunnar hendi. Stór hluti þess er friðaður eða er áætlað að friða samkvæmt aðalskipulagi og Vinstri græn leggja áherslu á að svo verði.Vinstri græn vilja að efnt verði til hugmyndasamkeppni um skipulag hins nýja byggðarkjarna sem boðinn yrði út. Áhersla yrði lögð á leiksvæði og barnvæna byggð með tengingu við náttúruna. Samkeppnin tæki til heildarskipulags fyrir byggðarkjarnana þrjá, Eyrarbakka, Stokkseyrar og hins nýja byggingarsvæðis, þannig að við fengjum góða heildarmynd. Taka þarf sérstakt tillit til umhverfisins og sérstöðu Eyrarbakka og Stokkseyrar varðandi byggingarstíl, menningu og sögu. Jafnframt þarf að deiliskipuleggja nýbyggingarsvæði á Eyrarbakka og Stokkseyri og strætisvagnaferðir þurfa að vera í boði á milli staðanna.
Vinstri græn styðja áframhaldandi uppbyggingu staðanna á sviði lista- og menningar. Við viljum setja á fót miðstöð handverks og lista þar sem áhersla verður lögð á listsköpun, hönnun, framleiðslu listmuna og námskeiðahald. Vinstri græn vilja koma á fót skólasögusafni á Eyrarbakka í samvinnu við Kennarasamband Íslands. Á Eyrarbakka er elsti barnaskóli á landinu sem hefur starfað samfleytt frá stofnun árið1852.
Nýr grunnskóli
Vinstri græn vilja að byggður verði nýr grunnskóli fyrir um 300 nemendur með stækkunarmöguleikum á þessu nýja byggingarsvæði, ásamt íþróttahúsi og sundlaug. Undirbúningsvinnuna þarf að vanda vel með þáttöku íbúa og skólafólks í faglegri hugmyndavinnu um skólagerð og skólinn yrði síðan hannaður með tilliti til þess. Skólahverfið verður hin nýja byggð, Eyrarbakki, Stokkseyri, Tjarnabyggð í Kaldaðarnesi og nemendur í 8. – 10. bekk úr Flóanum. Fljótlega yrðu því um 250 nemendur í skólanum. Ljóst er að húsnæði Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri er orðið mjög lélegt og kallar á skjóta og varanlega úrlausn. Vandræðagangur meirihlutans í þessu máli er mikill og á kjördæmatímabilinu hafa þeir ekki unnið að úrbótum né komið sér saman um ákveðna lausn. Þeir skipuðu hins vegar vinnuhóp í október um framtíðarskipan húsnæðismála skólans. Hópurinn mælti með nýju skólahúsi mitt á milli þorpanna. Skólanefnd, með bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins í fararbroddi, hafnaði þessari hugmynd vinnuhópsins og gerði því vinnu hans að engu.
Vinstri græn telja að einn sameiginlegur skóli í nýju hverfi sé lausnin og muni efla og styrkja skólastarfið á staðnum. Faglega og fjárhagslega er þetta góður kostur. Vinstri græn – hreinar línur.
Hilmar Björgvinsson,
skipar 2. sæti á lista VG í Árborg við komandi sveitarstjórnarkosningar