Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
06.05.2010
Jákvætt áreiti við ferðamenn

Í hverri viku fara þúsundir ferðamanna um Sveitarfélagið Árborg og sá fjöldi á aðeins eftir að aukast. Og aukinn ferðamannastraumur kallar á aukna þjónustu og skapar tækifæri. Í endurbyggingu atvinnulífsins geta mörg lítil ferðaþjónustufyrirtæki og samtakamáttur þeirra skipt höfuðmáli. Við hér í Árborg megum ekki láta okkar eftir liggja í þeim efnum. Ferðamenn sem fara um bæina okkar, Selfoss, Stokkseyri og Eyrarbakka eiga að finna fyrir jákvæðu og öflugu áreiti.

Ferðamenn sem koma á Selfoss sækjast eftir verslun, afþreyingu og þjónustu og þeir þurfa að finna að hér er vilji til að mæta þeim þörfum. Tækifærin fyrir athafnasamar konur og menn eru óteljandi. Hér vantar í dag kjörbúð með góðu kjötborði, markað með handiðn og landbúnaðarvörur, skemmtisvæði fyrir börnin svo fátt eitt sé talið.

Á Eyrarbakka og Stokkseyri eru þegar starfandi miðstöðvar fyrir mannlíf og afþreyingu í ótal söfnum og húsum á borð Menningarverstöðina og Gónhól. Allt eru það einingar sem þarf að hlú að og efla. Sundlaugarnar á Stokkseyri og Selfossi eru mikilvægir afþreyingarstaðir þar sem aðsókn fer vaxandi en þar eru einnig vaxtamöguleikar sem einstaklingar og félög geta komið að. Þar má nefna möguleikana á sjósundi á Stokkseyri og Eyrarbakka þar sem gömlu Bryggjumannvirkin geta gengið í endurnýjun lífdaga.

Ekkert eitt í þessu er sú skyndilausn að þar með verði atvinnuleysi í sveitarfélaginu útrýmt í einu vetfangi. Og ekkert eitt okkar leysir vandann. En ef við tökum höndum saman og leggjumst öll á árar getum við lyft grettistaki og þar skiptir miklu að sú umgjörð sem bæjarfélagið setur atvinnulífinu sé jákvæð og hagstæð. Vinnum saman.

Þórdís Eygló Sigurðardóttir
Forstöðumaður Sundstaða Árborgar
skipar 1 sæti VG Árborg

Greinin birtist í Dagskránni 6. maí 2010

Deila