Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
5.01.2012
Gerum hreint fyrir dyrum sorpsins

Meðan meirihutinn í bæjarstjórn Árborgar gerir ekki skilmerkilega grein fyrir vinnubrögðum við útboð á sorphirðu í bæjarfélaginu, lætur hann félaga sína liggja undir ámæli um óeðlilega hagsmunagæslu í málinu. Hvernig var að staðið og hvað fór úrskeiðis? Vinnubrögð við útboð sorphiðunnar hér í bæ eru með þeim hætti að fólk finnur ekki á þeim eðlilegar skýringar og þá er svo auðvelt að ætla þeim óeðlilegar skýringar. Erum við stödd í sápuóperunni um Sópranós í sorpinu? Eða hvað ...?

Sorphirða er meðal lögboðinna skylduverkefna sveitarfélaga og reglur á landsvísu, gera þeim skylt að bjóða hana út. Þess vegna þurfti að bjóða hana út í þessu bæjarfélagi okkar, þrátt fyrir ánægju með vel unnið verk þess aðila sem annast hafði verkin í mörg ár. Útboðsskylda er hluti af þeim reglum sem ætlað er að tryggja frjálsa samkeppni. Tilgangur hennar er að sneiða framhjá klíkuskap, kalla fram hagstætt verð og opna möguleika á framförum í gæðum. Þegar við samþykkjum að viðhafa slíkar verklagsreglur, megum við ekki hliðra þeim fyrir "rétta" aðila, þótt góðir séu.

Nú háttar eðlilega þannig til í fámennu samfélagi að fólk tengist þar hvert öðru ýmsum böndum, fjölskyldu, vina og félagsskapar. Það góða við slíkar aðstæður er að allir vita um hagsmunatengslin, en það breytist í það slæma ef ekki liggur ljóst fyrir hvort óvilhallir verkferlar voru virtir. Þá er svo auðvelt að sjá bara það augljósa, þekktu tengslin milli einstaklinganna. Hérna er það sem upphefjast ásakanir um spillingu og gagnásakanir um rætni. Það hermir upp á þann sem hefur allan verkferilinn í hendi sér, að útskýra hann og leiða þar með fram skýra mynd af málinu. Geri hann það ekki, er ekki við þá að sakast sem véfengja réttmæta málsmeðferð. Þegar minnihlutinn fékk að vita rétt fyrir bæjarstjórnarfund að hafna ætti tilboðið Gámaþjónustunnar, bað hann um viku frest á málinu, en meirihlutinn neitaði því.

Bæði Íslenska gámafélagið og Gámaþjónustan eru fyrirtæki sem hafa sett sér metnaðarfulla umhverfisstefnu og lagt áherslu á bætta meðferð sorps og sorphirðu. Ég ætla ekki bæjarfulltrúunum Elfu Dögg Þórðardóttur, maka framkvæmdastjóra Íslenska gámafélagsins eða Gunnari Egilssyni, bróður eins framámanna ÍG, að þau hafi ekki gætt þess að halda sig til hlés í undirbúningi þessa vandmeðfarna útboðs. Það að grunsemdir beinist að þeim, er því einu að kenna að verkferli útboðs sorphirðunnar er orðið langt klúður og endaði loks á því sem lítur út fyrir að vera fyrirsláttur. Ef einhver á að biðja þau afsökunar á að þau skuli sitja ómaklega í súpunni, eru það þeir sem kokkuðu súpuna.

Ég hnaut um þessa setningu í umjöllun hinna þriggja bæjarfulltrúa D-listans í Árborg í Dagskránni fyrir áramót: "Beitt hefur verið pólitískum þrýstingi í þessu máli, en það hefur ekki verið af hálfu Íslenska Gámafélagsins. Sá þrýstingur kom úr annarri átt." Hér er beinlínis fullyrt að pólitíksum þrýstingi hafi verið beitt, um leið og annar verkbjóðenda, ÍG, er sýknaður af því. Það buðu bara tveir í verkið.

Nú spyr ég Eyþór Arnalds, oddvita D-listans, fyrir hönd allra félaga sinna: Hver beitti pólitískum þrýstingi og í gegnum hvaða pólitíkusa? Meðan þessi dylgja stendur þarna óútskýrð, hafa íbúar ekki ástæðu til að halda annað en að "hinn" verkbjóðandinn sé gerandi og einhver pólitíkus úr minnihlutanum sé pólitíski þrýstingsberinn. Eða hvað ...?

Mér finnst að þegar Elfa Dögg situr undir þeim munnmælasögum út um allan bæ, að þarna sé verið að hygla fjölskyldufyrirtæki hennar fyrir hana, þá eigi hún það skilið að félagar hennar hreinsi hana af þeim áburði, - dylgjulaust. Mikið ferlega má sannleikurinn í málinu vera vondur, ef félögum Elfu Daggar finnst hann verri en að vera álitin Sópranós í sorpinu. Það hermir upp á forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins í Árborg að gera hreint fyrir dyrum sorphirðunnar hér í bæ. Íbúar eiga það skilið.

Andrés Rúnar Ingason
Formaður Vinstri grænna í Árborg

Greinin birtist í Dagskránni 5. jan 2012.

Deila