Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
02.12.2010
Að setja Ölfusá í fjötra

Ég er friðsöm manneskja. Helst af öllu vil ég sitja heima í hægindastól við hlið bókahillunnar og lesa heimsbókmenntir í rólegheitunum og drekka sítrónu- og engiferte með hunangi. Sem minnst vil ég vita af gangi heimsmálanna, og ef það kæmi styrjöld mundi ég minnast viturlegra orða norska prófessorsins sem sagði er Noregur var hernuminn – stríð eru stríð - þau hafa alltaf fylgt mannkyninu - en gefðu mér nú frið til að halda áfram að stúdera.

En stundum gerist eitthvað í hinum ytri heimi, sem fær mig til að hrökkva upp af djúpum blundi, og sem knýr mig til þess að taka til máls. Síðasta hrollvekjandi fyrirbærið sem truflað hefur mig við lestur góðra bóka, er svokölluð Selfossvirkjun. SELFOSSVIRKJUN! „Æji, nei,“ hugsaði ég, „byrjar vitleysan nú einu sinni enn.“ Þarf maður nú einu sinni enn að standa upp úr hægindastólnum og gera eitthvað til varnar. Það er nú einu sinni eðli andskotans að geta aldrei látið eitt né neitt í friði. Hið illa í heiminum væri ekki vandamál ef það væri ekki svona iðið og starfssamt.

Og nú er það Ölfusáin, sem ekki á að fá að vera í friði. Það er ekki nóg með að rennslið í ánni eigi að verða einungis 15 rúmmetrar eftir virkjun (sem samsvarar einungis því vatni sem rennur í gjánni), heldur þarf að fara í rándýrt umhverfismat sem kostar tugi milljóna og tekur 2-5 ár áður en hugmyndin getur komist á hönnunarstig. Þetta veit ég af því að ég vann við gerð umhverfismats í átta ár og fékk vel greitt fyrir minn snúð. Þetta er semsagt bara undirbúningsvinnan, þá er eftir öll hönnunin sjálf, útreikningar, teikningar og ýmiss ófyrirséður kostnaður sem hlýst af ófyrirsjáanlegum vandamálum eins og þeim hvernig eigi að tryggja það að laxinn komist í gegnum túrbínu virkjunarinnar.

Á sama tíma og rætt er um að skera niður á leikskólum Árborgar. Á sama tíma og bæði ríki og sveitarfélög draga saman seglin, þá dregur bæjarstjórn Árborgar upp þessa hugmynd, að eyða milljónatugum og líklega hundruðum milljóna í virkjun sem ekki mun skila hagnaði fyrr en eftir dúk og disk, ef nokkurn tímann. Þetta virðist vera einhver algjör 2007 þvæla.

Er nokkur furða þótt friði mínum hafi verið raskað og ég hafi neyðst til að líta upp frá skruddunum.

Og jafnvel þótt arður verði kannski af virkjuninni eftir 20 ár, og jafnvel þótt öll vandamál væru tæknilega leysanleg, þá þarf að greiða milljónatugi fyrir umhverfismatið núna og niðurstaða allrar þessarar vinnu verður lítil og ræfilsleg Ölfusá sem rennur fjötruð rétt ofan í gjánni. Fimmtán rúmmetrar er ekki mikið rennsli þegar meðalrennsli árinnar er um 380 rúmmetrar. Það verður semsagt hægt að ganga út að gjánni á þurru og detta ofan í hana, umhugsunarefni þegar öryggi barna og unglinga er annars vegar. Ætli það mundi ekki þurfa að reisa mannhelda girðingu meðfram allri ánni???

Annað atriði sem alltaf verður til vandræða varðandi Selfossvirkjun eru jakahlaup í ánni. Það mun skapast hætta og hún veruleg í hvert skipti sem jakahrönglið fer að safnast upp fyrir aftan stífluna. Tæknilegu snillingarnir í Reykjavík finna örugglega einhver ráð, en munu þau virka?

Mér líst semsagt ekkert á þetta fyrirbæri sem Selfossvirkjun er, og neyðist því til að gera athugasemdir. Fiskivænar túrbínur eru víst ennþá bara á rannsóknarstigi úti í Bandaríkjunum, einhvers konar fræðilegur möguleiki, sem ekki er víst að muni nokkurn tímann verða að raunverulegum veruleika.

En hvað um það. Í framtíðinni mun ég kannski sitja bitur í bókaherberginu og bryðja laxaplokkfisk úr túrbínum í Selfossvirkjun. Með smjöri og kartöflum. En þangað til er ég að hugsa um að reyna að koma í veg fyrir að þetta mál fari lengra, enda umhverfismatið dýrt, og verkfræðingur á fullum launum í tímavinnu kostar a.m.k. 10-20 þús. kr. á klst. Ég veit það af því að ég er með próf frá verkfræðiháskóla.

Stöðvum þessa vitleysu áður en hún kostar okkur of mikið. Ég trúi því ekki fyrr en á reynir að Selfossbúar vilji missa ána sína, aðalprýði bæjarins og stolt. Sjónrænu áhrifin verður aldrei hægt að bæta.

Ingibjörg Elsa Björnsdóttir,
M.Sc., þýðandi og bókabéus, Selfossi.

Greinin birtist í Dagskránni 2. desember 2010.

Deila