Undanfarin ár hefur starfað umhverfishópur innan Vinstrihreyfinarinnar – græns framboðs. Í lok árs 2006 ákvað hópurinn að taka umhverfisstefnu flokksins til frekari vinnslu. Því starfi lauk í byrjun árs 2007 og úr varð mjög metnaðarfull umhverfisstefna sem byggist á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Í henni er hugsað til lengri tíma en næstu fjögurra ára, þar er hugsað til framtíðar og komandi kynslóða. Þess vegna heitir umhverfisstefna okkar Græn framtið.
Sjálfbæra þróun má skilgreina sem þá þróun sem gerir okkur kleift að mæta þörfum okkar án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum og rétt náttúrunnar og lífríkis til að þróast á eigin forsendum. Hugtakið nær ekki einungis til umhverfismála heldur endurspeglar það samfélagið allt og afstöðu fólksins til samfélags og umhverfis. Samspil efnahagslegra, félagslegra og vistfræðilegra þátta þarf að vera til staðar og ekki má ganga á einn þátt umfram annan. Hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar er því nátengd hugmyndum um jöfnuð og velferð og fellur þvi vel að stefnumörkun VG í öllum málaflokkum.
Græn framtíð sýnir þann metnað sem lagt er í málefnastarf og stefnumörkun innan flokksins. Mikil vinna er lögð í undirbúning og úr verður skýr stefna sem bætir og eflir aðra stefnumörkun sem fyrir er. VG kemur ekki með skyndilausnir né heldur skiptir flokkurinn um lit þegar vindurinn blæs þannig. Margra ára starf liggur að baki og einarður vilji til að starfa í þágu framtíðarinnar þar sem markmiðið er að standa vörð um umhverfi og samfélag.
Græn framtíð fjallar um orkustefnu og orkunýtingu, ferskvatn, loftslagsmál, viðhald líffræðilegrar fjölbreytni og þá auðlind sem náttúra og landslag Íslands er. Hún tekur einnig fyrir verndun og nýtingu lífrænna auðlinda hafsins í heildstæðu samhengi, gróður- og jarðvegsvernd, landnýtingu, ferðaþjónustu og útivist, samgöngur, mengun alls kyns, matvæli og matvælaöryggi, náttúrusiðfræði, umhverfismennt og stjórnsýslu umhverfismála.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur að efla þurfi umhverfisráðuneytið og stofnanir á þess vegum. Mikilvægi þessa málaflokks mun fara vaxandi á næstu árum og telur VG að það eigi að vera markmið okkar Íslendinga að vera leiðandi land á sviði umhverfismála. Umhverfismál eiga að vera undirliggjandi í allri stefnumörkun og hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar ber að fara eftir þegar teknar eru ákvarðanir til framtíðar.
Sjálfbær þróun snýst um siðferðislega afstöðu stjórnvalda og almennings. Við berum öll ábyrgð á umhverfi okkar. Stjórnvöld og almenningur bera saman ábyrgð á sjálfbærri þróun. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur lagt fram metnaðarfulla stefnu og leiðir að lausnum til þess að ná fram markmiðum sínum. Nú skortir okkur aðeins umboð kjósenda til að koma stefnunni í framkvæmd. Við vinstri-græn hlökkum til að takast á við þau verkefni sem bíða í umhverfismálum.
Alma Lísa Jóhannsdóttir,
skipar 2. sæti á lista Vinstri-grænna
í Suðurkjördæmi.