Ágætur kunningi minn sagði við mig um daginn þegar í ljós kom að VG væri með tæplega 9% fylgi í skoðanakönnun í Árborg: “Sjáðu þarna falla dauð niður 9% atkvæða sem aðeins nýtast íhaldinu”. Ég þekki viðhorfið og spurði hann hvort þetta væri lýðræðishugsunin í Samfylkingunni. Kosningar og stjórnmál snúast ekki um dauð atkvæði, þá væri hér aðeins einn flokkur, ein viðurkennd skoðun og einræðisherra eins og hefur verið og er í alltof mörgum samfélögum í heiminum. Kosningar eru tilraun til þess að sem flestar skoðanir komist að og fái að njóta sín. Þess vegna eru 9 fulltrúar í bæjarstjórn í Árborg og 63 Alþingismenn.
Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur frá upphafi sýnt það að hún hefur skoðanir sem eru nýstárlegar og að mörgu leyti aðrar en aðrir stjórnmálflokkar hafa. Hún hefur einnig þorað að bera fram hugmyndir sem ekki eru allra, en hafa reynst eiga víðtækara fylgi en trúað var fyrirfram. Það á t.d. við um gjaldfrjálsan leikskóla sem þótti afar slæm hugmynd fyrir fjórum árum, en nú vilja aðrir stjórnmálaflokkar eigna sér hana. Þess vegna er mikilvægt að VG, Frjálslyndi flokkurinn og jafnvel “exbé” bjóði fram sem víðast, hvort sem er til sveitarstjórna eða til Alþingis. Það er ólýðræðisleg og lítilmótleg baráttuaðferð þegar stjórnmálaflokkar eigna sér atkvæði fólks og gefa sér það að atkvæði greidd einum stjórnmálaflokki séu frá þeim tekin eða gagnist einhverri allt annarri stjórnmálahreyfingu en þeirri sem fær atkvæðið.
Kjósandi góður, finnist þér að málflutningur VG eigi samhljóm í hjarta þínu, greiddu þá atkvæði eins og hjartað býður, það er þitt að ráðstafa atkvæðinu.
Vinstri græn, hreinar línur
Þorsteinn Ólafsson,
skipar 14. sæti á lista VG í Árborg við komandi sveitarstjórnarkosningar