Foríða Stefna Félagið Greinar Myndir Efni Tenglar
 
 



Útgefið efni:




Tenglar:



vg.is



vinstri.is




Smugan




Sveitarfélagið Árborg

  Fréttir:



ganga í flokkin
styrkja flokkinn
senda línu


 
   

Nýjar greinar:

Þakkir frá VG að loknum kosningum
- Þórdís Eygló Sigurðardóttir, Bjarni Harðarson og Jón Hjartarson

Kosningar til hreppsnefnda eru nú afstaðnar og fyrir utan stórsigur Besta flokksins í Reykjavík er fátt sem kemur á óvart. Ríkisstjórnarflokkarnir fara heldur hallt út úr þessum leik og er að vonum á krepputímum. Sjálfstæðisflokkur sækir nú fast að fyrri stöðu sinni.

Hér í Árborg féll sitjandi meirihluti og nú tekur við hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks. Er full ástæða til að óska þeim flokki velfarnaðar í vandasömu starfi. Kosningasigur Sjálfstæðismanna var að langstærstum hluta á kostnað Samfylkingar sem tapaði nærri fjórðungi þeirra atkvæða sem flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Framsókn tapaði lítillega af sínu fylgi sem var nóg til að missa annan bæjarfulltrúa sinn og fella þar með meirihlutann.

Lesa meira


Árborgarblað VG vegna bæjarstjórnarkosninga
- Framjóðendur VG í Árborg 2010

Kosningaloforð VG í bæjarstjórnarkosningunum á laugardaginn er eftirfarandi. Við ætlum að vinna af heiðarleika og gera okkar besta.

Heimilin í landinu, fyrirtækin, sveitarfélögin og ríkissjóður standa frammi fyrir erfiðu verkefni þar sem reynir á og engar töfralausnir bjóðast. Það er ábyrgðarlaust að lofa íbúum að leysa fjárhagsvanda sveitarsjóðs eins og hendi væri veifað eða að hægt verði að útrýma atvinnuleysi í bæjarfélaginu á einu misseri

Lesa meira

Veljum af varkárni
- Þórdís Eygló Sigurðardóttir og Bjarni Harðarson

Kosningarnar á laugardaginn skipta máli fyrir hag okkar allra. Sveitarfélagið Árborg er skuldugt sveitarfélag og frá hruni hefur reksturinn verið með tapi. Um þetta er enginn ágreiningur og þessi staða er uppi í öllum sambærilegum sveitarfélögum í landinu.

Hér í Árborg hafa aftur á móti unnist mikilsverðir varnarsigrar í baráttunni og Árborg er ekki í hópi þeirra mörgu sveitarfélaga sem komin eru í gjörgæslu yfirvalda vegna skuldaóreiðu. Þar skiptir miklu að sveitarfélagið Árborg hefur ekki selt frá sér dýrmætar eignir eða leitað annarra skyndilausna á vanda sínum.

Lesa meira


Samfélag fyrir alla á ábyrgð okkar allra!
- Sædís Ósk Harðardóttir

Í kosningunum sem fram fara þann 29. maí nk. munum við kjósa um hugmyndafræði. Sú hugmyndafræði sem réði ríkjum hér á Íslandi síðustu áratugi varð þess valdandi að heilt lýðræði riðaði til falls. Sú hugmyndafræði sem þá réði ríkjum er ekki sú hugmyndafræði sem við í Vg viljum sjá hér í Árborg. Í yfirstandandi efnahagskreppu hefur þörf fyrir fjárhagsaðstoð til einstaklinga aukist sem og önnur velferðarþjónusta.
Lesa meira


Hófsemdin skapar vellíðan
- Bjarni Harðarson

Það er gott að íslenskt réttarfar nái nú til þeirra útrásarvíkinga sem mesta sök eiga á efnahagshruninu. En bakvið hrunið og ófarir í íslensku efnahagslífi er líka önnur orsök sem við verðum að vinna á. Það er sá hugsunarháttur sem hér leiddi okkur áfram í gengdarlausri eyðslu, skuldasöfnun og veruleikafyrringu.

Ísland átti að verða ríkasta land í heimi stór hluti þjóðarinnar trúði því að það væri æskilegt og eftirsóknarvert markmið. Fyrir það markmið mátti fórna ýmsu og þá fyrst af öllu bæði hófsemi, umburðarlyndi og skynsemi.

Lesa meira

 
   

arborg.is
Heimasíða Sveitarfélagsins Árborgar

eyrarbakki.is
Heimasíða Eyrarbakka

stokkseyri.is
Heimasíða Stokkseyrar